Erlent

Fjórðungur barna enn í bleyju í að­lögun fyrir grunn­skóla

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Kennarar segja foreldra vilja vel en hafa áhyggjur af miklum skjátíma.
Kennarar segja foreldra vilja vel en hafa áhyggjur af miklum skjátíma. Getty

Fjórðungur barna sem hefja undirbúningsnám í grunnskóla á Bretlandseyjum er enn í bleyjum. Þá virðast mörg þeirra skorta styrk og hreyfigetu, sem kennarar rekja til mikillar skjánotkunar.

Þetta eru niðurstöður skýrslu sem unnin var upp úr svörum grunnskólakennara um undirbúningsstigið í grunnskólanum. Um er að ræða svokallaðan R-bekk, þar sem R stendur fyrir „reception“, sem hér heima væri kallað „mótttaka“ eða „aðlögun“.

Börn hefja yfirleitt aðlögun fjögurra til fimm ára.

„Það er tvö börn [í bekknum] mínum sem geta ekki, líkamlega, setið á teppinu. Þau hafa ekki styrk til þess,“ sagði einn kennari í samtali við rannsakendur. Þá sagði yfirmaður í skóla að þeim börnum fjölgaði sem gætu ekki gengið almennilega, væru klaufaleg í hreyfingum og kæmust ekki upp stiga, svo eitthvað sé nefnt.

Um það bil 40 prósent kennara sögðu sóttvarnaaðgerðir í kórónuveirufaraldrinum eiga þátt í því að börnin væru ekki betur undirbúin, á meðan aðrir sögðu erfitt að nota það sem afsökun til lengri tíma. Foreldrar, þrátt fyrir að vilja vel, þyrftu að gera betur.

Umrædd rannsókn, sem framkvæmd var af samtökunum Kindred2, náði einnig til foreldra en aðeins um 44 prósent þeirra töldu að börn ættu að kunna að nota bækur, það er að segja fletta blaðsíðum í stað þess að pota í þær eins og um væri að ræða spjaldtölvu, þegar þau hæfu skólagöngu.

Þrír af hverjum fjórum sögðu að börn ættu að vera laus við bleyju.

Nokkur munur var á svörum kennara og foreldra; til að mynda sögðust 90 prósent foreldra telja að börn þeirra væru tilbúin til að hefja grunnskólanám en kennarar sögðu að þriðjungur barna væri það ekki.

Guardian fjallar ítarlega um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×