Erlent

Rúss­neskir heims­meistarar meðal far­þega vélarinnar

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Shishkova og Naumov á Ólympíuleikunum í Lillehammer árið 1994.
Shishkova og Naumov á Ólympíuleikunum í Lillehammer árið 1994. Getty/ALLSPORT/Chris Cole

Stjórnvöld í Rússlandi hafa staðfest að Evgenia Shishkova og Vadim Naumov, fyrrverandi heimsmeistarar í skautadansi, hafi verið meðal farþega í flugvélinni sem fórst fyrir utan Washington í gærkvöldi að staðartíma.

Nítján lík eru sögð hafa fundist í Potomac-ánni og engin fundist á lífi enn sem komið er. CBS hefur greint frá því að líkamsleifum og braki úr vélinni hafi skolað upp Virginíu-megin við ána.

Dmitri Peskov, talsmaður stjórnvalda í Moskvu, sagði í samtali við fréttamenn í morgun að fleira skautafólk og fleiri rússneskir ríkisborgarar hefðu verið um borð í vélinni. Fjölmiðlar vestanhafs höfðu áður greint frá því að skautafólk hefði verið meðal farþega, á leið frá Wichita í Kansas til Washington.

Shishkova og Naumov voru hjón og unnu til gullverðlauna í parakeppni á HM árið 1994. Þau voru búsett í Bandaríkjunum.

Alls voru 64 um borð í flugvélinni, sem var af tegundinni Bombardier CRJ700, þar af fjögurra manna áhöfn og 60 farþegar. Þá virðist sem þrír hafi verið um borð í herþyrlu sem flogið var á vélina en hún var af tegundinni Sikorsky UH-60 Black Hawk þyrlu frá Fort Belvor-herstöðinni í Virginíu.

Slysið átti sér stað um klukkan 21 að staðartíma og var öllum brottförum og lendingum á Reagan-alþjóðaflugvellinum í Washington frestað í kjölfarið.

Gríðarmikill viðbúnaður er á vettvangi, fjöldi neyðarbifreiða og um 300 björgunarmenn. Kafarasveitir eru mættar á vettvang en aðstæður sagðar afar erfiðar. Eins stigs frost er á svæðinu og vatnið ískalt.

Fjöldi látinna hefur ekki verið staðfestur af yfirvöldum. Björgunaraðgerðir standa enn yfir en CNN hefur eftir viðbragðsaðilum að staðan sé alvarleg og menn undirbúi sig undir að leita að látnum fremur en að finna fólk á lífi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×