Innlent

Sveitar­fé­lögin sam­þykkja innanhússtillögu ríkis­sátta­semjara

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Heiða Björg Hilmisdóttir er formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Heiða Björg Hilmisdóttir er formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Vísir/Einar

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) samþykkti í dag innanhússtillögu ríkissáttasemjara í kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga.

Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari, lagði fram innanhússtillögu í gær. Kennarasamband Íslands hefur til klukkan eitt á laugardag til að taka afstöðu til tillögunnar.

Í tilkynningu frá SÍS segir að stjórnin fjallaði um tillögu ríkissáttasemjara „sem hann lagði fram eftir árangurslausar kjaraviðræður“, á fundi sínum í dag. 

„Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga lýsir yfir vilja að fara í þá vegferð sem ríkissáttasemjari hefur lagt fram í kjaradeilu Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands, þrátt fyrir að tillagan feli í sér talsverðan kostnað. Stjórn telur mikilvægt að sýna samningsvijla, og eftir fund með framkvæmdastjórum sveitarfélaga, samþykkir stjórn að gfanga frá kjarasamningnum við þessa mikilvægu stétt,“ segir í bókun SÍS.

Samþykkt tillögunnar var samhljóða af stjórn Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Samþykki Kennarasamband Íslands ekki tillöguna hefst verkfall að öllu óbreyttu á morgun, 1. febrúar, í fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×