Innlent

Rann­sókn lokið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Dagur B. Eggertsson er formaður undirbúningsnefndarinnar.
Dagur B. Eggertsson er formaður undirbúningsnefndarinnar. Vísir/Einar

Undirbúningsnefnd Alþingis hefur lokið rannsókn sinni á Alþingiskosningunum 30. nóvember og verður niðurstöðunni dreift til þingmanna í dag. Alþingi verður sett á morgun.

Meðal þess sem nefndin hafði til skoðunar var hvort ástæða væri til endurtalningar atkvæða í Suðvesturkjördæmi eins og farið hefur verið fram á í kæru. Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er formaður nefndarinnar sem er skipuð fulltrúum allra þingflokka.

Dagur segir að nefndin hafi lokið störfum á föstudag og greinargerð hennar verið send til yfirlestrar yfir helgina. Henni verði dreift til þingmanna í dag og birt á vef Alþingis á morgun.

Alþingi verður sett á morgun. Kjör þingmanna er ekki endanlegt fyrr en Alþingi hefur að undangenginni skoðun undirbúningsnefndarinnar staðfest það.


Tengdar fréttir

Of snemmt að álykta um þörf á endurtalningu atkvæða

Formaður undirbúningsnefndar Alþingis um kosningu þingmanna segir of snemmt að segja til um hvort ástæða sé til endurtalningar atkvæða í Suðvesturkjördæmi eins og farið hefur verið fram á í kæru. Ekkert bendi til annars en atkvæði sem þar voru greidd í nýafstöðnum kosningum séu geymd með tryggum hætti.

Biðst ekki fullrar lausnar fyrr en úr­slit kosninganna verða stað­fest

Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins sem náði kjöri til Alþingis, hefur beðist tímabundinnar lausnar í borginni. Sem jöfnunarþingmaður segist hún ekki ætla að biðjast endanlegrar lausnar sem borgarfulltrúi fyrr en úrslit þingkosninganna hafa verið staðfest og þingsæti hennar sé öruggt.

Brýnt að endurskoða atkvæðagreiðslu utan kjörfundar

Það er mat Landskjörstjórnar að brýnt sé að endurskoða framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu, bæði hér á landi sem og erlendis. Í þessari endurskoðun væri mikilvægt að skoða sérstaklega hvort unnt væri að gera framkvæmdina skilvirkari og öruggari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×