„Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Geðhjálp 13. febrúar 2025 12:36 Dr. Gunni, Sanna Magdalena og Breki Karls luma á nokkrum góðum G-vítamínum fyrir landsmenn. „
Ég tek G-vítamín á hverjum degi, enda er það alveg jafn nauðsynlegt og hin vítamínin,“ segir tónlistar- og fjölmiðlamaðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, best þekktur sem Dr. Gunni. „Eftir annasama daga finnst mér gott að fá mér þetta G-vítamín: taka stund með sjálfri mér og virkilega anda djúpt ofan í kviðinn,“ segir borgarfulltrúinn Sanna Magdalena Mörtudóttir sem stendur í stórræðum þessa dagana eins og aðrir borgarfulltrúar. „Ég vinn mestan part við tölvuna. Því er hreyfing mér sérlega mikilvæg. Flesta daga felst stór G-vítamín skammtur í að ganga til og frá vinnu,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. Landssamtökin Geðhjálp ýttu úr vör í upphafi þorrans árlegu 30 daga geðræktarátaki sem ber heitið G-vítamín og er byggt á Geðorðunum 10 og 14 Lífsorðum Héðins Unnsteinssonar og Þórdísar Rúnarsdóttur. Hér segja tónlistar- og fjölmiðlamaðurinn Gunnar Lárus Hjálmarsson, borgarfulltrúinn Sanna Magdalena Mörtudóttir og Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, lesendum frá G-vítamínunum sínum. „Ofan á grundvallarmál eins og að sofa vel, hreyfa mig og eta skynsamlega, þá passa ég mig alltaf að hafa eitthvað til að hlakka til á framtíðarplaninu,“ bætir Gunnar við. „Svo er ég fyrir löngu búinn að finna út hvað mér finnst skemmtilegt að gera og passa mig svo bara að gera sem mest af því og eins lítið og ég mögulega get af því sem er leiðinlegt. Svo er ég fyrir löngu búinn að finna út hvað mér finnst skemmtilegt að gera og passa mig svo bara að gera sem mest af því Ekki er verra að stíga út fyrir þægindarammann af og til og ég er t.d. nýlega bæði búinn að fara í karla jóga og fargufu og er þar að auki að passa tvo ketti þessa dagana. Lífið er einstakt ævintýri og enginn ástæða til að fara í gegnum það með rigningarský yfir hausnum ef maður mögulega kemst hjá því.“ Á þorranum munu birtast á Vísi greinar sem fjalla um átakið, auk þess sem eitt G-vítamín mun birtast á forsíðunni á Vísi daglega meðan átakið stendur yfir. Á sama tíma munu útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 vekja athygli á átakinu, fjalla um G-vítamín dagsins og fjalla almennt um geðheilbrigði. „Djúp öndun gerir mér gott,“ bætir Sanna við. „Það er svo oft sem við förum í gegnum daginn á sífelldum þeytingi án þess að staldra við og einblína á öndunina. Annað nærandi G-vítamín er að elda góðan mat með vinkonu og spjalla saman um það sem er í gangi í lífinu. Ég er alltaf endurnærð eftir slíka nærandi samveru.“ Annað nærandi G-vítamín er að elda góðan mat með vinkonu og spjalla saman um það sem er í gangi í lífinu. „Stundum gleymi ég mér í göngutúrunum og geng lengri leið en ég ætlaði mér nánast óafvitandi,“ bætir Breki við. „Það hreinsar hugann og núllstillir mig. Í þessum göngutúrum hringi ég stundum í dóttur mína, sem er við nám erlendis og spjalla við hana um allt og ekkert. Það jarðtengir mig. Ég fæ stóran G-vítamín skammt við að faðma Steinu mína. Um helgar reyni ég síðan að fara í lengri göngutúra í náttúrunni, á sléttlendi eða upp um fell og firnindi. Þeir færa mér ró og jafnvægi. Ég fæ stóran G-vítamín skammt við að faðma Steinu mína. Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni. Það færir mér þakklæti og frið.“ Dagatal með G-vítamínskömmtum er til sölu á vef Geðhjálpar og í völdum verslunum Krónunnar um allt land.
G vítamín Geðheilbrigði Heilsa Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira