Leik lokið: ÍR-ÍBV 34-30 | ÍR-stelpur ekki vand­ræðum með Eyjakonur í Skógarselinu

Haraldur Örn Haraldsson skrifar
. Sara Dögg Hjaltadóttir og félagar í ÍR unnu góðan sigur á ÍBV í Olís deild kvenna i dag.
. Sara Dögg Hjaltadóttir og félagar í ÍR unnu góðan sigur á ÍBV í Olís deild kvenna i dag. Vísir/Diego

ÍR vann fjögurra marka sigur á ÍBV, 34-30, í Olís deild kvenna í handbolta í dag eftir að hafa verið 21-14 yfir í hálfleik. Eyjakonur fengu langþráð stig í síðasta leik en sáu hins vegar ekki til sólar lengst af í Skógarselinu í dag. 

Eyjaliðið lagaði þá stöðuna aðeins í lokin og slapp því við stórtap. ÍR-liðið vann aftur á móti sinn þriðja sigur í síðustu fjórum deildarleikjum og náði fyrir vikið Selfoss að stigum.

Sylvía Sigríður Jónsdóttir skoraði tíu mörk fyrir ÍR og Ingunn María Brynjarsdóttir varði tvö vítaskot í markinu. Birna Berg Haraldsdóttir var með níu mörk og sjö stoðsendingar fyrir ÍBV en það dugði skammt.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í dag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira