Svein­dís Jane kom inn af bekknum þegar ein­vígið var svo gott sem búið

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sveindís Jane spilaði síðasta hálftímann í kvöld.
Sveindís Jane spilaði síðasta hálftímann í kvöld. Ronny HARTMANN / AFP

Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir hóf viðureign Wolfsburg og Evrópumeistara Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á varamannabekknum. Staðan var 3-0 gestunum frá Katalóníu í vil þegar hún loks kom inn á. Leiknum lauk með 4-1 sigri gestanna.

Börsungar tróna enn á toppi Evrópu og stefnir allt í að liðið verji titil sinn. Takist að yrði það fjórði Meistaradeildartitill félagsins á síðustu fimm árum.

Leikur kvöldsins í Þýskalandi var í járnum framan af en um miðbik fyrri hálfleiks setti

Caitlin Dijkstra boltann í eigið net eftir fyrirgjöf Aitana Bonmatí. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiks en á þriggja mínútna kafla í upphafi síðari hálfleiks gerðu gestirnir út um leikinn.

Irene Paredes kom boltanum í netið af stuttu færi eftir sendingu Mapi León. Það var svo Salma Paralluelo sem gerði í raun út um leikinn nokkrum mínútum síðar eftir undirbúning Bonmatí.

Sveindís Jane kom inn af bekknum þegar klukkustund var liðin og á 79. mínútu minnkaði heimaliðið forystuna. Janina Minge með markið eftir undirbúning Lynn Wilms.

Hin 18 ára gamla Sydney Schertenleib bætti fjórða marki Börsunga við áður en leiktíminn rann út og 1-4 lokatölur. Síðari leikur liðanna fer fram í næstu viku og ljóst að útlitið er svart hjá Sveindísi Jane og stöllum hennar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira