Áhrifaríkari leið til að auka D-vítamínmagn í líkamanum Artasan 27. mars 2025 09:05 Það hefur aldrei verið einfaldara að tryggja daglega inntöku D-vítamíns. Munnspreyin frá BetterYou bjóða upp á áhrifaríka, bragðgóða og notendavæna lausn fyrir börn, fullorðna og eldri borgara. D-vítamínskortur er algengur í vestrænum löndum og getur haft neikvæð áhrif á heilsuna til lengri tíma. Þetta mikilvæga næringarefni stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins, viðhaldi sterkra beina og tanna og eðlilegri vöðvastarfsemi.
Á Íslandi getur verið áskorun að fá nægilegt magn D-vítamíns, sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Sólin sem er helsta uppspretta D-vítamíns skín ekki nægilega hátt á himni til að húðin framleiði það í nægilegu magni. Aðeins um 10% af D-vítamíni kemur úr fæðunni, sem eykur hættuna á skorti. Rannsóknir sýna að hlutverk D-vítamíns er umfangsmeira en margir gera sér grein fyrir. Það er lykilþáttur í að viðhalda almennri heilsu og vellíðan og getur jafnvel dregið úr líkum á ýmsum heilsufarsvandamálum. Vitað er um a.m.k. 100 mismunandi sjúkdómseinkenni eða sjúkdóma sem tengjast D-vítamínskorti. Embætti landlæknis mælir sérstaklega með inntöku D-vítamíns sem bætiefnis. Á vef embættisins segir m.a.: „Þó almennt sé hægt að fullnægja næringarefnaþörfinni með fjölbreyttu og vel samsettu fæði er Íslendingum ráðlagt að taka D- vítamín sérstaklega sem bætiefni.“ Munnsprey: Einfaldari og áhrifaríkari leið Nýlegar rannsóknir sýna að D-vítamín í munnspreyformi getur verið áhrifaríkari leið til að auka D-vítamínmagn í blóði en hefðbundin hylki, sérstaklega hjá einstaklingum sem glíma við meltingarvandamál eða eiga erfitt með að taka töflur. Í rannsókn sem birt var í Nutrients árið 2015 kom í ljós að upptaka D3-vítamíns skilaði verulega betri árangri í blóðgildum miðað við gelhylki [1]. Hjá heilbrigðum einstaklingum jókst D3-vítamínmagn í blóði um 21,7% með hylkjum, en um 43% með munnspreyjum. Hjá einstaklingum með meltingarvandamál jókst magn D3-vítamíns um 36% með hylkjum en um 118% með munnspreyjum. Þetta bendir til þess að munnsprey geti tryggt hraðari og betri upptöku þar sem þau frásogast beint í blóðrásina í gegnum slímhú í munni og fara þannig fram hjá meltingarveginum. Þetta gerir munnspreyin að einstaklega góðu vali fyrir alla, hvort sem fólk á í erfiðleikum með meltingu, vill ekki taka töflum, á erfitt með að kyngja töflum eða einfaldlega vill hámarka upptöku vítamínsins á áhrifaríkan hátt. Bragðgóð og þægileg lausn fyrir alla Það hefur aldrei verið einfaldara að tryggja daglega inntöku D-vítamíns. Munnspreyin frá BetterYou bjóða upp á áhrifaríka, bragðgóða og notendavæna lausn fyrir börn, fullorðna og eldri borgara. Þau eru fáanleg í mismunandi styrkleikum og einstaklega handhæg og auðvelt er að taka þau með hvert sem er þar sem þau taka lítið pláss. Munnspreyin henta því vel í hversdagslífinu, hvort sem þú ert heima, á ferðinni eða í vinnunni. Með því að velja munnsprey færðu form sem frásogast hraðar og styður við heilbrigði beina, ónæmiskerfis og vöðvastarfsemi. Heimild: [1] J. Todd et al., Nutrients. 2015;7(11):5441-5452. PMC4627615
Heilsa Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira