Guðrún og Katla með stoðsendingar í Íslendingaslag Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. apríl 2025 15:13 Katla Tryggvadóttir og Guðrún Arnardóttir lögðu báðar upp mark þegar Rosengård tók á móti Kristianstad. vísir/anton Tvær íslenskar stoðsendingar litu dagsins ljós í Íslendingaslag Rosengård og Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Rosengård vann leikinn, 2-1, og komst þar með aftur á sigurbraut. Í síðustu umferð steinlá liðið fyrir Hammarby, 4-0. Meistarar Rosengård eru í 4. sæti deildarinnar með níu stig. Kristianstad er í 10. sætinu með þrjú stig. Guðrún Arnardóttir var á sínum stað í vörn Rosengård og á 26. mínútu lagði hún upp mark fyrir Beu Sprung. Snemma í seinni hálfleik kom Oona Sevenius heimakonum svo í 2-0. Gestirnir gáfust ekki upp og á 75. mínútu lagði Katla Tryggvadóttir upp mark fyrir Beatu Olsson. Skömmu síðar var Katla, sem er fyrirliði Kristianstad, tekin af velli. Þrátt fyrir góðan vilja tókst Kristianstad ekki að jafna og Rosengård fagnaði sigri. Guðný Árnadóttir og Alexandra Jóhannsdóttir léku allan leikinn fyrir Kristianstad. Ísabella Sara Tryggvadóttir sat allan tímann á varamannabekknum hjá Rosengård.
Sænski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Sjá meira