Íslenski boltinn

Frederik Schram fundinn

Aron Guðmundsson skrifar
Frederik Schram er mættur aftur á Hlíðarenda og er klár í að byrja næsta leik Vals í Bestu deildinni.
Frederik Schram er mættur aftur á Hlíðarenda og er klár í að byrja næsta leik Vals í Bestu deildinni.

Eftir stutt stopp í Dan­mörku er mark­vörðurinn Frederik Schram mættur aftur til Vals eftir að hafa farið frá liðinu eftir síðasta tíma­bil. Þrátt fyrir að hafa ekki ætlað sér að koma aftur til Ís­lands að spila fót­bolta gat hann ekki annað en gripið tækifærið þegar að það gafst. Fjarvera hans í leik gegn FH á dögunum vakti upp spurningar en nú er Frederik Schram mættur.

Frederik, sem á að baki 55 leiki í efstu deild hér á landi, spilaði með Val á síðasta tíma­bili en gekk svo í raðir Ro­skild­e í Dan­mörku. Hann er nú mættur aftur á Hlíðar­enda og skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við Val.

„Fyrst og fremst er þetta bara geggjað. Aðeins skrítið líka,“ segir Frederik í sam­tali við íþrótta­deild. „Það var ekki planið að koma hingað aftur en stundum er þetta bara þannig í fót­boltanum að þú þarft að grípa tækifærið þegar að það gefst. Þetta tækifæri kom á réttum tíma fyrir mig og ég er bara mjög ánægður með að vera kominn á Hlíðar­enda aftur.“

Félags­skiptin áttu sér stuttan að­draganda en gengu fljótt fyrir sig.

„Ég var með fókusinn á Ro­skild­e, við vorum í smá fall­baráttu þar en allt í einu kom Valur inn í myndina og við fundum lausn á þessu með Ro­skild­e. Bæði fyrir mig og fjöl­skylduna mína. Við söknuðum alveg Ís­lands eftir að við vorum komin aftur til Dan­merkur og höfðum alveg talað um það okkar á milli að það gæti verið gott að fara á ein­hverjum tíma­punkti aftur til Ís­lands.“

Forráða­menn Ro­skild­e sýndu Frederik skilning í þessum aðstæðum.

„En ég skil alveg að þeir hafi kannski verið smá ósáttir. Ég var einn af reynslu­mestu leik­mönnum liðsins en Ro­skild­e er með frekar ungt lið. Þá var ég vara­fyrir­liði og auðvitað var þetta skrýtin staða en þeir óskuðu mér bara vel­farnaðar, gerðu ekkert mál úr þessu.“

Vals­menn vildu semja á nýjan leik við Frederik á síðasta ári en þá náðist ekki sam­komu­lag milli hans og félagsins. Af hverju?

„Það er bara stundum svo­leiðis í fót­boltanum. Við ræddum lengi saman og reyndum, bæði ég og stjórn Vals, að ná sam­komu­lagi. Það gekk ekki upp á þeim tíma. Núna stóðu málin öðru­vísi og auðvelt fyrir bæði mig og þá að taka þessa ákvörðun.“

En alveg ljóst að viðskilnaðurinn við Val á sínum tíma hafi verið í góðu fyrst Frederik er mættur aftur á Hlíðar­enda.

„Fólk sem þekkir mig veit að ég er ekki týpan sem talar illa um aðra. Þetta voru bara viðræður milli fólks, ekkert persónu­legt. Mér hefur alltaf liðið vel í Val.“

Ekki eins og í tölvuleik

Vals­menn greindu frá komu Frederiks þann 25.apríl en hann mætti ekki til landsins fyrr en í þessari viku og mátti greina það á um­ræðunni að fólk furðaði sig á fjar­veru hans í síðustu um­ferð Bestu deildarinnar.

„Þetta er ekki eins og í tölvu­leik þar sem að þú færir leik­mann frá Dan­mörku yfir til Ís­lands og hann er bara strax mættur. Ég er fjöl­skyldumaður og skiptin sjálf til Vals gengu hratt fyrir sig en ég á hús og fjöl­skyldu í Dan­mörku, var að byrja í nýrri vinnu á mánu­daginn. Það eru margir hlutir sem ég þurfti að ganga frá áður en ég kæmi hingað og menn hér hjá Val voru sammála því að það gengi ekki upp að ég væri kæmi hingað strax en að hausinn væri enn í Dan­mörku.“

Þurfa að vera þolinmóðir

Vals­menn eru í brekku í Bestu deildinni, 3-0 tap gegn FH í síðustu um­ferð hefur vakið upp spurningar­merki um bæði leik­menn og þjálfara liðsins. Frederik vill gera sitt til að rétta skútuna við.

„Við þurfum bara að vera þolin­móðir. Það eru gæði í þessu liði. Stigin sem liðið hefur nælt í eru kannski ekki eins mörg og við var búist en fót­boltinn er stundum þannig. Ef við vinnum næstu þrjá leiki þá er enginn að spá í þessu. Við tökum einn leik í einu. Ég er búinn að æfa með liðinu, það eru frábær gæði hér, hátt tempó. Ég hlakka bara til að spila næsta leik, þá vonandi fara stigin þrjú að skila sér til okkar,“ segir Frederik sem er klár í að byrja næsta leik Vals gegn ÍA á laugar­daginn kemur.

Tveggja og hálfs árs samningur undir­ritaður á Hlíðar­enda og mark­mið Frederiks eru þau sömu og áður í Vals treyjunni.

„Vinna titla. Valur er félag sem þarf að vinna titla, það er langt síðan síðast og þá væri gaman að komast langt í Evrópu. Það verður líka gott að fara vinna leiki aftur. Það er aðeins öðru­vísi að koma til félags þar sem krafan er að vinna hvern leik ólíkt því sem ég upp­lifði hjá Ro­skild­e þar sem að hver sigur­leikur er nánast eins og að vinna titil. Vonandi get ég hjálpað til við að Valur nái árangri.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×