Golf

Mikil­mennin mis­stíga sig á PGA-meistaramótinu

Valur Páll Eiríksson skrifar
McIlroy átti í vandræðum, sem og félagar hans Scheffler og Schauffele. Scheffler rétti þó úr kútnum og stendur best þeirra þriggja að vígi.
McIlroy átti í vandræðum, sem og félagar hans Scheffler og Schauffele. Scheffler rétti þó úr kútnum og stendur best þeirra þriggja að vígi. Andrew Redington/Getty Images

Óvænt staða er á meðal toppmanna eftir fyrsta hring PGA-meistaramótsins í golfi. Sigurstranglegir kylfingar voru margir hverjir í brasi þegar mótið hófst á Quail Hollow-vellinum í Norður-Karólínu í gær.

Flestra augu voru á stjörnuholli Rory McIlroy, Scottie Scheffler og Xander Schauffele, en þar er um að ræða nýkrýndan Masters-sigurvegara, efsta mann heimslistans og ríkjandi meistara PGA-meistaramótsins. Allir þrír voru í vandræðum framan af degi, ef ekki hann allan.

McIlroy, sem gjarnan kann vel við sig á Quail Hollow-vellinum, náði aðeins í tvo fugla á fyrsta hring, lék á þremur höggum yfir pari og er tíu höggum frá efsta manni. Schauffele lét tveimur höggum betur, er á höggi yfir parinu, en Scheffler var þeirra bestur, náði í tvo fugla á síðustu þremur holunum og er á tveimur undir pari.

Jhonattan Vegas átti glimrandi hring og leiðir mótið.Orlando Ramirez/Getty Images

Efstur er óvænt Venesúelamaðurinn Jhonattan Vegas. Hinn fertugi Vegas hefur unnið fjögur PGA-mót á 17 ára atvinnumannaferli og aldrei náð hærra en 22. sæti á risamóti – sem hann gerði á PGA-meistaramótinu árið 2016.

Hann lék á als oddi í gær og sérlega góður lokahnykkur á hring hans skilaði forystunni. Vegas náði fugli á fimm af síðustu sex holunum og er alls á sjö höggum undir pari vallar, tveimur höggum á undan næstu mönnum.  Það eru Bandaríkjamaðurinn Ryan Gerard og Ástralinn Cam Davis sem eru næstir á fimm undir pari.

Gerard fékk fjóra fugla og einn örn á holum 10 til 15 en missti dampinn með skolla á bæði 17. og 18. braut.

Annar hringur mótsins hefst um hádegisbilið en seinni hluti hans verður sýndur beint á Vodafone Sport. Bein útsending hefst klukkan 17:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×