Íslenski boltinn

Þeir bestu (2. sæti): Hæg­læti en heljarinnar ferill

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leikmaðurinn sem endaði í sæti 2.
Leikmaðurinn sem endaði í sæti 2. grafík/sara

Hér er farið yfir leikmanninn sem endaði í 2. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992.

2. Atli Guðnason

  • Lið: FH
  • Staða: Kantmaður
  • Fæðingarár: 1984
  • Íslandsmeistari: 2006, 2008, 2009, 2012, 2015, 2016
  • Bikarmeistari: 2007, 2010
  • Leikir: 285
  • Mörk: 67
  • Stoðsendingar: 84
  • Leikmaður ársins: 2009, 2012
  • Fjórum sinnum í liði ársins
  • Gullskór: 2012

Sumarið 2012 var krúnudjásnið á glæsilegum ferli Atla Guðnasonar. Þá náði hann fernu sem enginn annar leikmaður í efstu deild hér á landi hefur náð. Hann varð Íslandsmeistari, markahæstur, stoðsendingahæstur og valinn leikmaður ársins. Atli skoraði tólf mörk og lagði upp þrettán fyrir lið FH sem fékk þrettán stigum meira en liðið í 2. sæti, Breiðablik.

Atli Guðnason er leikja- og stoðsendingahæsti leikmaður FH í efstu deild.vísir/andri marinó

Þetta var einn af sex Íslandsmeistaratitlum sem Atli vann með FH, eina liðinu sem hann lék með í efstu deild. Hann varð einnig bikarmeistari í tvígang. Hann var tvisvar sinnum valinn leikmaður ársins (2009 og 2012), eitthvað aðeins Allan Borgvardt hefur einnig afrekað. Hann er níundi leikjahæsti leikmaður í sögu efstu deildar og þegar hann hætti 2021 vantaði hann aðeins þrjár stoðsendingar til að jafna stoðsendingamet Guðmundar Benediktssonar í efstu deild.

Ferilinn hjá Atla fór ekki af stað með neinum fítonskrafti enda ekki heiglum hent að vinna sér sæti í ógnarsterku liði FH á upphafi gullaldarskeiðs þess. Atli var lánaður til HK 2004 og Fjölnis 2005 en var svo orðinn hluti af FH-liðinu 2006, þá 22 ára.

Hann varð Íslandsmeistari 2006, bikarmeistari 2007, Íslandsmeistari 2008 og átti svo sitt fyrsta súpertímabil 2009 þegar FH varð Íslandsmeistari í fimmta sinn á sex árum. Atli skoraði tíu mörk í tuttugu deildarleikjum og var valinn leikmaður ársins.

FH lenti í 2. sæti 2010 og 2011 en rústaði deildinni 2012 með Atla í frábæru formi. Hann kom með beinum hætti að 25 af 51 marki FH-inga og átti eitt besta tímabil sem hefur sést hjá leikmanni í deildinni okkar.

Atli og FH-ingar urðu að gera sér 2. sætið að góðu 2013 og svo aftur 2014 eftir fræga baráttu við Stjörnumenn. Atli spilaði jafnan á vinstri kanti en var endrum og eins notaður fyrir aftan framherjann. Hann gerði það seinni hluta tímabilsins 2014, var algjörlega magnaður og samvinna þeirra Stevens Lennon var einstök. Atli skoraði sex mörk og gaf sex stoðsendingar í síðustu sex deildarleikjunum og var bæði með marka- og stoðsendingaþrennu á þessum ótrúlega kafla. Atli var aftur stoðsendingakóngur 2014 með ellefu slíkar.

Hann skoraði átta mörk sumarið 2015 þegar FH endurheimti Íslandsmeistaratitilinn. Það var jafnframt áttunda og síðasta tímabilið í röð þar sem hann kom að tíu mörkum eða meira í deildinni.

Loftið fór aðeins úr blöðrunni hjá Atla næstu ár, eins og hjá FH-liðinu í heild sinni, og hann skoraði aðeins sjö mörk síðustu sex tímabilin á ferlinum.

Atli spilaði aldrei erlendis en afrekaði allt sem hægt var að afreka hér heima. Hann var ekki sneggstur, sterkastur eða skotfastastur en vann það upp með mikilli útsjónarsemi, framúrskarandi tækni og hæfileika til að finna svæðin sem þar sem hann gat gert mestan óskunda fyrir andstæðinginn. Það fór ekki alltaf mikið fyrir Atla, enda rólyndismaður, en sagan mun fara mjúkum höndum um hann.


Tengdar fréttir

Þeir bestu (4. sæti): Sigurvegarinn

Hér er farið yfir leikmanninn sem endaði í 4. sæti í valinu á bestu leikmönnum í efstu deild karla í fótbolta frá 1992.

Þeir bestu: Fylgt úr hlaði

Vísir gerðist stórhuga og ákvað að setja saman lista yfir sextíu bestu leikmenn efstu deildar karla frá 1992. Listinn yfir þessa sextíu leikmenn birtist á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×