Verzlingar settu upp húfur og skelltu sér til Krítar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. maí 2025 13:18 Spennan var mikil fyrir athöfnina. Allir í sínu fínasta pússi. Verzló Alls útskrifuðust 332 nemendur frá Verzlunarskóla Íslands við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu. Dúx skólans var Inga Júlíana Jónsdóttir. Nýstúdentar njóta þessa dagana lífsins í útskriftarferð á Krít.
Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri ávarpaði gesti og nýstúdenta við útskriftina sem fram fór í Borgarleikhúsinu. Hún minnti á að útskrift marki tímamót – ekki aðeins í námi, heldur í lífi ungs fólks. „Eftir þriggja ára nám er komið að þeim tímamótum í lífi ykkar að útskrifast með stúdentspróf og kveðja skólann ykkar“ sagði GunnInga. „Þið eruð nú hluti af 120 ára sögu Verzlunarskólans og arfleið hans. Þið eruð fulltrúar nýrra tíma og það er ykkar að móta framtíðina.“ Stór stund þegar húfurnar eru komnar á höfuðið.Verzló Hún minnti á að síðustu ár hefðu ekki aðeins snúist um bóklegt nám, heldur einnig þroska og að læra af reynslu. „Þið hafið þroskast frá því að vera óharðnaðir unglingar í að verða ungt fólk í heimi hinna fullorðnu. Þið hafið mótað ykkar eigin sýn á heiminn og mátað ykkur í ýmsum aðstæðum. Og það er einmitt það sem á að gera á þessum árum,“ sagði hún og lagði áherslu á mikilvægi þess að framhaldsskólaárin séu eftirminnileg, krefjandi og lærdómsrík – þar sem líka megi gera mistök og læra af þeim. Húfurnar komnar upp.Verzló Að vanda var úthlutað úr VÍ 100 sjóðnum en hann var stofnaður í tilefni af 100 ára afmæli skólans. Fyrrverandi nemendur skólans lögðu fé í sjóðinn og í skipulagsskrá hans segir m.a. að árlega skuli hann styrkja valda nemendur með fjárframlagi, þegar þeir flytjast milli bekkja eða ljúka stúdentsprófi. Skal við það miðað að styrkþegar hafi sýnt afburða námsárangur eða lagt verulega af mörkum til skólastarfsins á annan hátt. Guðrún Inga skólastjóri ásamt nýstúdent.Verzló Dúx skólans var Inga Júlíana Jónsdóttir í 3-U, með I. ágætiseinkunn; 9,67. Hlaut hún bókagjöf og námsstyrk. Semidúxinn var Vala Katrín Guðmundsdóttir í 3-S, með I. ágætiseinkunn; 9,65 og hlaut hún bókagjöf og námsstyrk. Nemendur með 9,3 og hærra fengu einnig bókagjafir og námsstyrk og voru það eftirfarandi nemendur: Hrafn Ingi Jóhannsson 3-Y 9,56 Snorri Már Arnarsson 3-Y 9,55 Karen Lind Stefánsdóttir 3-R 9,5 Andri Snær Einarsson 3-X 9,46 Guðmundur Kristinn Davíðsson 3-T 9,37 Tómas Karl Magnússon 3-X 9,31 Hugo Þorri Þorsteinsson 3-S 9,31 Jafnframt voru veitt verðlaun fyrir bestan námsárangur að loknu 1. og 2. ári og voru það eftirfarandi nemendur: Anna Barbara Tómasdóttir 1-U einkunn 9,65 Vilhjálmur Geir Geirsson 2-Y, einkunn 9,9
Framhaldsskólar Tímamót Reykjavík Skóla- og menntamál Dúxar Tengdar fréttir Erfiðast að læra íslenskuna Þrjár stelpur sem allar fengu verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í Fjölbrautarskólanum í Ármúla og eru nýbúnar að læra íslensku stefna allar á nám við sama háskólann. Þær segja vináttuna hafa gefið sér margt og segjast stoltar af því að tala íslensku. 27. maí 2025 15:16 Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Mikil gleði ríkti í Háskólabíó síðastliðinn föstudag þegar 209 nýstúdentar voru brautskráðir frá Kvennaskólanum við hátíðlega athöfn. Dúx skólans var Grímur Gunnhildarson Einarsson með einkunnina 9,69 en þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem dúx kemur af félagsvísindabraut. 27. maí 2025 13:41 Dúxinn fjarri góðu gamni Dúx Flensborgarskólans í Hafnarfirði þetta árið var ekki viðstaddur brautskráningarathöfnina vegna þess að hann er þessa stundina staddur úti í Andorra þar sem hann etur kappi á Smáþjóðaleikunum í sundi fyrir Íslands hönd. 24. maí 2025 19:01 Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira
Erfiðast að læra íslenskuna Þrjár stelpur sem allar fengu verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í Fjölbrautarskólanum í Ármúla og eru nýbúnar að læra íslensku stefna allar á nám við sama háskólann. Þær segja vináttuna hafa gefið sér margt og segjast stoltar af því að tala íslensku. 27. maí 2025 15:16
Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Mikil gleði ríkti í Háskólabíó síðastliðinn föstudag þegar 209 nýstúdentar voru brautskráðir frá Kvennaskólanum við hátíðlega athöfn. Dúx skólans var Grímur Gunnhildarson Einarsson með einkunnina 9,69 en þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem dúx kemur af félagsvísindabraut. 27. maí 2025 13:41
Dúxinn fjarri góðu gamni Dúx Flensborgarskólans í Hafnarfirði þetta árið var ekki viðstaddur brautskráningarathöfnina vegna þess að hann er þessa stundina staddur úti í Andorra þar sem hann etur kappi á Smáþjóðaleikunum í sundi fyrir Íslands hönd. 24. maí 2025 19:01