Fótbolti

Ísak í einkaflugi út að semja við erkifjendurna

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Ísak Bergmann kyssti merki Fortuna fyrir ekki svo löngu en virðist nú vera á leið til helstu erkifjanda félagsins. 
Ísak Bergmann kyssti merki Fortuna fyrir ekki svo löngu en virðist nú vera á leið til helstu erkifjanda félagsins.  Getty/Lars Baron

Ísak Bergmann Jóhannesson virðist vera á förum frá Fortuna Dusseldorf og á leið til nágrannaliðsins FC Köln, sem tryggði sér sæti í þýsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Ísak er staddur í einkaflugvél á leið til Köln, þar sem hann mun hitta stjórnarmenn félagsins og skrifa undir samning.

Þýski miðillinn Bild greinir frá því að klásúla sé í samningi Ísaks og hann verði keyptur af Köln fyrir fimm og hálfa milljón evra. Klásúlan gildi aðeins út daginn í dag og því verði að hafa hraðar hendur við læknisskoðun og samningsundirritun. 

Ísak átti frábært tímabil með Fortuna og hefur verið sterklega orðaður við brottför en óvænt er að hann sé á leið til nágranna og helstu erkifjanda félagsins, Köln.

Gunnar Birgisson, íþróttafréttamaður á RÚV, sagði frá því á X-síðu sinni að Ísak hefði sést á Reykjavíkurflugvelli og væri á leið til Köln í Þýskalandi. Vísir fletti fluginu upp, vélin sem um ræðir er nú staðsett yfir Amsterdam. Tuttugu mínútum frá lendingu í Köln.

Stuðningsmenn Fortuna hafa brugðist illa við fregnunum og birt myndir af sér bera eld að treyju Ísaks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×