Portúgal Þjóðadeildarmeistari eftir vítakeppni 8. júní 2025 18:32 Cristiano Ronaldo skoraði markið sem kom Portúgal í framlengingu. Alexander Hassenstein/Getty Images Portúgalir eru Þjóðadeildarmeistarar eftir sigur gegn nágrönnum sínum frá Spáni í úrslitaleik í kvöld sem fór alla leið í vítaspyrnukeppni. Það voru Spánverjar sem byrjuðu betur og Martin Zubimendi kom liðinu yfir á 21. mínútu. Nuno Mendez jafnaði hins vegar metin fyrir Portúgal fimm mínútum síðar eftir stoðsendingu frá Pedro Neto. Mikel Oyarzabal kom Spánverjum svo yfir á nýjan leik á síðustu mínútu venjulegs leiktíma fyrri hálfleiks og staðan því 2-1, Spánverjum í vil, þegar liðin gengu til búningsherbergja. Portúgölum tókst þó að jafna metin í annað sinn þegar hinn fertugi Cristiano Ronaldo kom boltanum í netið eftir um klukkutíma leik, en hann þurfti svo að fara meiddur af velli stuttu fyrir leikslok. Fleiri urðu mörkin ekki í venjulegum leiktíma og því var farið í framlengingu. Hvorugu liðinu tókst að finna netmöskvana í framlengingunni og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegara. Leikmenn liðanna voru öruggir á punktinum til að byrja með og fyrstu sjö spyrnurnar enduðu í netinu. Það var ekki fyrr en í fjórðu spyrnu Spánverja að einhverjum brást bogalistinn. Alvaro Morata steig þá á punktinn, en spyrnan var slök og Diogo Costa sá við honum. Ruben Neves gat því tryggt Portúgölum sigurinn með síðustu spyrnu liðsins. Neves fann hliðarnetið og tryggði Portúgal sigurinn og Portúgalir eru þar með Þjóðadeildarmeistarar. Þjóðadeild karla í fótbolta
Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Íslenski boltinn
Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Íslenski boltinn