Erlent

Þota með á þriðja hundrað manns brot­lenti í í­búða­hverfi

Kjartan Kjartansson skrifar
Fólk virðir fyrir sér brak úr farþegaþotu Air India sem hrapaði í Ahmedabad í Gujarat-ríki á norðvestanverðu Indlandi í dag.
Fólk virðir fyrir sér brak úr farþegaþotu Air India sem hrapaði í Ahmedabad í Gujarat-ríki á norðvestanverðu Indlandi í dag. AP/Ajit Solanki

Farþegaþota með 242 manns um borð brotlenti rétt eftir flugtak frá Ahmedabad-flugvellinum á norðvestanverðu Indlandi í dag. Mikill viðbúnaður er á staðnum vegna slyssins en þotan hrapaði í íbúðabyggð.

För Boeing 787-8 Dreamliner-vélar Air India var heitið til Gatwick-flugvallar í London á Englandi samkvæmt frétt indverska fréttavefsins India Today. Vélin tók á loft klukkan 13:38 að staðartíma og brotlenti fimm mínútum síðar. Flugmaður er sagður hafa sent neyðarkall til flugumferðarstjórnar rétt fyrir slysið en eftir það náðist ekki samband við vélina. Hún var þá í rúmlega 600 feta hæð. Á myndböndum frá vettvangi sést þykkur svartur reykur yfir slysstað.

Engar staðfestar fréttir hafa enn borist af mannskaða en ljóst er að fjöldi fólks hefur farist. Þotan hrapaði í Meghani-íbúðahverfinu við flugvöllinn að sögn flugmálayfirvalda en um fimm milljónir manna búa í Ahmedabad. Af myndum af vettvangi að dæma virðist þotan hafa lent á byggingum. ANI-fréttaveitan hefur eftir lögreglu að vélin hafi lent á gistiheimili fyrir lækna.

Slökkviliðsmenn á vettvangi flugslyssins í Ahmedabad í Gujarat-ríki á norðanverðu Indlandi.AP/Ajit Solanki

Um borð voru 230 farþegar og tólf manna áhöfn. Flugfélagið hefur nú staðfest að af þeim hafi 169 verið Indverjar, 53 breskir ríkisborgarar, sjö portúgalskir og einn kanadískur.

Fréttaritari breska ríkisútvarpsins BBC segir aðstæður á vettvangi sláandi. Viðbragðsaðilar keppist við að reyna að bjarga sem flestum mannslífum og bera lík af slysstað. Sjúkrabílar séu út um allt og vegum hafi verið lokað. Enn er unnið að því að slökkva elda sem kviknuðu.

Flugvellinum var lokað eftir slysið og öllum flugferðum þaðan og þangað frestað. Flugfélagið hefur komið á fót neyðarlínu fyrir aðstandendur farþega.

Veðuraðstæður eru sagðar hafa verið góðar þegar slysið varð. Þetta er í fyrsta skipti sem Boeing-þota af þessari gerð hrapar á þennan hátt. Bandaríska fyrirtækið hefur átt í vök að verjast undanfarin ár vegna mannskæðra slysa með 737 Max-farþegaþotur þess.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×