Skoðun

Þegar hið óhugsan­lega gerist

Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar

Tryggingar endurspegla lífið og er ætlað að grípa okkur þegar óvæntir atburðir gerast og valda okkur tjóni. Þær þurfa að vera í sífelldri endurskoðun í takt við tímann hverju sinni, lifnaðarhætti fólks og viðhorf. Fram til þessa hefur ekki verið hægt að tryggja sig sérstaklega á meðgöngu hér á landi og einnig hefur verið skarð í stuðningi við börn með meðfædda alvarlega sjúkdóma. Meðgöngutrygging Sjóvár er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og er hugsuð til að veita foreldrum meiri hugarró á þessu einstaka tímabili í lífi þeirra og stuðning ef þörf krefur.

Með nærgætni að leiðarljósi

Um leið og ljóst er að sumt verður aldrei bætt þá geta tryggingar mögulega veitt fólki rými og svigrúm á erfiðum stundum. Meðgöngutrygging er viðleitni til að auka öryggistilfinningu á meðgöngu, við fæðingu og fyrstu daga barnsins. Tryggingin er leið til að styðja við fjárhagslegt öryggi fjölskyldna og var þróuð í samstarfi við Einstök börn og Gleym mér ei styrktarfélag sem þekkja vel hvar skórinn kreppir þegar eitthvað kemur upp á þessum viðkvæma tíma í lífi foreldra og barna. Gerð var þarfagreining og leitað ráðgjafar varðandi fagþekkingu á kvensjúkdómum og fæðingum hjá sérfræðingum innan heilbrigðiskerfisins við undirbúning og horft til þess að þróa tryggingu sem væri sérsniðin fyrir umrætt tímabil og kæmi fljótt og vel til framkvæmda ef á þyrfti að halda.

Í raun er ekki eingöngu um tryggingu að ræða heldur skref í rétta átt að sanngjarnara samfélagi þar sem hugað er að kvenheilsu og viðurkennd eru víðtæk áhrif áfalla á geðheilsu og velferð. Áhersla er á mikilvægi þess að fólk fái svigrúm til að vinna úr áföllum og að mögulegt sé að gefa rými til að aðlagast nýjum aðstæðum.

Brúum bilin

Í gegnum tíðina hefur verið skarð í stuðningskerfi fyrir verðandi mæður því ekki hefur verið mögulegt að tryggja sig sérstaklega fyrir því sem upp getur komið í tengslum við meðgöngu og fæðingu. Vissulega geta allar konur tryggt sig með öðrum hætti, svo sem með Líf- og sjúkdómatryggingu, en sérstök trygging sem tekur mið af þessu tímabili í lífi margra kvenna hefur ekki verið fyrir hendi hér á landi áður. Bótunum er ætlað að brúa ákveðið bil, svo sem tekjutap eða sálfræðikostnað og er tryggingin að norrænni fyrirmynd.

Einnig hefur verið óbrúað bil í stuðningi við börn með meðfædda alvarlega sjúkdóma. Meðgöngutryggingin nær yfir meðfædd heilkenni og alvarlega sjúkdóma sem greinast á fyrsta ári barnsins. Eftir það getur Barnatrygging tekið við. Þá er barnið með samfellda og öfluga vernd frá 17. viku í móðurkviði fram til 20 ára aldurs, en Barnatrygging er frá eins mánaða til 20 ára aldurs. Þetta hefur ekki verið mögulegt fram til þessa.

Að norrænni fyrirmynd

Í Svíþjóð hafa meðgöngutryggingar verið seldar frá árinu 1990 og 85% kvenna kaupa meðgöngutryggingu þar í landi. Fyrir 5-6 árum var farið að bjóða upp á meðgöngutryggingar í Danmörku og Noregi og hafa tryggingarnar fengið mikla fjölmiðlaumfjöllun í Danmörku. Ekki hefur verið hægt að tryggja sig sérstaklega á meðgöngu hér á landi fram til þessa og hefur því verið gat í tryggingum þegar kemur að kvenheilsu. Auk þess hefur verið óbrúað bil í stuðningi við börn með meðfædda alvarlega sjúkdóma. Nú er loks möguleiki fyrir konur á Íslandi að tryggja sig og barnið sem þær ganga með á þessu mikilvæga tímabili.

Mergur málsins

Með nýrri Meðgöngutryggingu leggjum við okkar lóð á vogarskálarnar til að stuðla að sanngjarnara samfélagi. Þetta er skref sem opnar vonandi umræðu um kvenheilsu og heilsu kvenna á meðgöngu, erfiðar fæðingar, andvana fæðingar, meðfædda sjúkdóma og hvaða áhrif áföll af þessum toga geta haft á líf foreldra og barna. Það er í raun sanngirnismál að konur geti tryggt sig á þessum mikilvæga og umbreytandi tíma í lífi sínu sem sannarlega hefur áhrif á heilsu þeirra og velferð fjölskyldunnar.

Höfundur er verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá.




Skoðun

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×