Leik lokið: Frakk­land - Holland 5-2 | Frakkar á­fram með fullt hús

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Úr leik liðanna í kvöld.
Úr leik liðanna í kvöld. vísir/getty

Holland er úr leik á EM en Frakkland var þegar komið áfram fyrir leik kvöldsins.

Hollendingar þurftu þriggja marka sigur í kvöld. Það gekk ekki eftir.

Eftir að hafa lent undir sýndi hollenska liðið mikinn karakter með því að koma til baka og leiða 2-1 í hálfleik.

Frakkar létu ekki bjóða sér þessa stöðu. Mættu grimmar út í seinni hálfleikinn og voru fljótlega komnar í 3-2. Þar með var draumurinn endanlega dáinn hjá þeim hollensku.

Þær frönsku voru þó ekki hættar því fjórða markið kom skömmu síðar. Algjört rothögg fyrir Holland.

Frakkar vinna riðilinn með stæl og spila við Þýskaland í átta liða úrslitunum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira