Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júlí 2025 08:30 Viktor Gyökeres varð bæði markakóngur og meistari með Sporting á síðustu leiktíð. Getty/Valter Gouveia Það er fátt sem kemur í veg fyrir það að Arsenal fái loksins alvöru markaskorara í liðið sitt, eitthvað sem flestir telja að hafi vantað í liðið undanfarin tímabil.
Stórskúbbarinn Fabrizio Romano segir að það eigi aðeins eftir að ganga frá smáatriðunum. Það má búast við „Here we go“ frá honum fljótlega. Umboðsmenn sænska framherjans Viktors Gyökeres eru komnir til London til að landa þessu. Gyökeres bíður síðan eftir grænu ljósi til að ferðast sjálfur til Englands til að fara í læknisskoðun og skrifa undir samning. Arsenal borgar Sporting 63,5 milljónir punda plús tíu milljónir punda í árangurstengdar greiðslur. Viktor Gyökeres hefur neitað að æfa með portúgalska liðinu Sporting sem fór mjög illa í forseta félagsins. Bæði Gyökeres og umboðsmaður hans eru sagðir hafa boðið að gefa eftir pening til þess að ná samningnum yfir línuna. Sporting vildi fá meira fyrir Gyökeres en Arsenal var að bjóða í fyrstu. Það komst aftur á móti hreyfing á málið í gærkvöldi og sænski framherjinn gæti orðið leikmaður Arsenal á næstu dögum. Viktor Gyökeres skoraði 54 mörk í 52 leikjum í öllum keppnum á síðustu leiktíð þar af 39 mörk í 33 leikjum í portúgölsku deildinni og sex mörk í átta leikjum í Meistaradeildinni. View this post on Instagram A post shared by Fabrizio Romano (@fabriziorom)
Enski boltinn Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira