Vara við hópeitrunum af völdum THC eftir atvik í fyrra Hólmfríður Gísladóttir skrifar 28. júlí 2025 13:05 Olían var notuð í deigið sem notað var á veitingastaðnum þrjá daga í október í fyrra. Getty Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna hefur hvatt lækna og aðra heilbrigðisstarfsmenn til að vera á varðbergi gagnvart mögulegum hópeitrunum af völdum virka THC í gegnum matvæli.
Tilefni er mál sem kom upp í Stoughton í Wisconsin í fyrra, þar sem að minnsta kosti 85 veiktust eftir að hafa neytt matvæla á veitingastað þar sem olía sem innihélt THC var notuð í misgáningi. Tetrahýdrókannabínól, skammstafað THC, er virkt efni sem er unnið úr kannabisplöntunni Cannabis Sativa. Börn og 91 árs einstaklingur voru meðal þeirra sem veiktust, eftir að hafa borðað á veitingastaðnum Famous Yeti's Pizza dagana 22. til 24. október. Rannsókn leiddi í ljós að olían á staðnum hafði klárast og starfsmenn fengið lánaða olíu í öðru sameiginlegu eldhúsi í sömu byggingu. Sú reyndist tilheyra fyrirtæki í húsinu sem framleiðir THC vörur ætlaðar til átu. Að minnsta kosti 33 leituðu heilbrigðisþjónustu eftir að hafa upplifað einkenni á borð við svima, þreytu og streitu eftir að hafa borðað pítsu, hvítlauksbrauð eða samlokur á Famous Yeti's Pizza. Þrír voru lagðir inn. Þar sem um óviljaverk var að ræða var ekkert frekar gert í málinu af hálfu yfirvalda en í skýrslu Sóttvarnastofnunarinnar er meðal annars vakin athygli á aukinni hættu á „smiti“ þegar nokkrir aðilar deila eldhúsi eða framleiðslurými. Bendir stofnunin á að koma megi í veg fyrir tilvik af þessu tagi með því að vanda merkingar og geymslu.
Bandaríkin Matvælaframleiðsla Kannabis Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira