Handbolti

Kveðst skilja vel hvers vegna Guð­mundur var rekinn

Sindri Sverrisson skrifar
Guðmundur Guðmundsson er afar kröfuharður þjálfari, að sögn Bent Nyegaard sem tjáði sig um brottrekstur Guðmundar á TV 2.
Guðmundur Guðmundsson er afar kröfuharður þjálfari, að sögn Bent Nyegaard sem tjáði sig um brottrekstur Guðmundar á TV 2. Skjáskot/TV 2

Danski handboltasérfræðingurinn Bent Nyegaard sagðist vel geta skilið hvers vegna forráðamenn Fredericia ákváðu að segja þjálfaranum Guðmundi Guðmundssyni upp, þrátt fyrir þann mikla árangur sem hann hefði náð.

Fredericia tilkynnti í gærmorgun að Guðmundur hefði verið rekinn. Liðið hafði þá tapað þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum á nýrri leiktíð í dönsku úrvalsdeildinni, eftir mikinn uppgang frá því að Guðmundur tók við liðinu sumarið 2022 sem meðal annars fól í sér sæti í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð, í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Nyegaard svaraði spurningum TV 2 um brottrekstur Guðmundar og sagði liðið hafa verið hætt að spila í anda þessa farsæla þjálfara:

„Ég skil það ótrúlega vel [að Guðmundur hafi verið rekinn]. Það eru auðvitað þessi þrjú töp í byrjun tímabilsins en þeir áttu líka mjög slæman endi á síðustu leiktíð með fimm töpum í síðustu sex leikjunum, svo það hefur verið aðdragandi að þessu, að þetta lítur ekki lengur út eins og mannskapurinn hans Guðmundar Guðmundssonar,“ sagði Nyegaard.

Aðspurður hvort að forráðamenn Fredericia hefðu átt að bregðast við fyrr kvaðst Nyegaard ekki sammála því. Liðið hefur enda náð afar góðum árangri undir stjórn Guðmundar og gerður var nýr samningur við hann í fyrra, eftir að liðið hafði komist í Final Four í danska bikarnum, náð 2. sæti í deild og spilað svo til úrslita um meistaratitilinn.

„Við höfum náð að búa til af­burða sterkt lið. Það eru engar stór­stjörnur hjá okkur, en margar stjörnur. Þetta miklu meira bara unnið á sam­heldnum hópi,“ sagði Guðmundur við Vísi í fyrrasumar.

„Við erum vel skipu­lagðir. Spilum góða vörn. Erum grimmir í hraða­upp­hlaupum og með góða mark­vörslu. Náum mikið út úr liðinu okkar. Mark­miðið þegar að ég kem inn var að fara keppa um að vinna til verð­launa árið 2025. Við erum langt á undan á­ætlun með það. Vinnum til verð­launa í fyrra og aftur núna. Erum mjög ná­lægt þessu,“ sagði Guðmundur í viðtalinu í fyrra.

Þó að Fredericia hafi svo endað í 3. sæti deildarkeppninnar á síðustu leiktíð þá fór úrslitakeppnin illa og því virðist þolinmæðin hafa verið lítil í upphafi nýs tímabils nú í haust.

„Þarf sterkan vilja og löngun til að vinna fyrir hann“

„Ég held að það hafi verið sanngjarnt að gefa Guðmundi sénsinn áfram,“ sagði Nyegaard við TV 2.

„Við skulum ekki gleyma að hann náði stórum úrslitum og endaði í 3. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð, sem kom liðinu í Evrópudeildina. Svo það er margt sem hefur heppnast en Guðmundur Guðmundsson er mjög kröfuharður þjálfari, það þarf sterkan vilja og löngun til að vinna fyrir hann. Og þegar það slokknar aðeins þá breytist hópurinn aðeins og þá er þetta ekki hópurinn hans Guðmundar Guðmundssonar. Þess vegna skil ég vel að Fredericia hafi valið aðra lausn,“ sagði Nyegaard.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×