Þjálfari Daníels og Arnórs rekinn Sindri Sverrisson skrifar 26. september 2025 10:30 Daníel Tristan Guðjohnsen hóf meistaraflokksferil sinn undir stjórn Henriks Rydström en fær nú nýjan þjálfara. malmoff.se Þrátt fyrir að hafa gert Malmö að sænskum meisturum í fótbolta síðustu tvö ár í röð hefur Henrik Rydström nú verið rekinn úr starfi.
Auk tveggja Svíþjóðarmeistaratitla vann Malmö sænska bikarinn í fyrra og komst í úrslitaleikinn í ár, undir stjórn Rydström. Liðið er hins vegar aðeins í 6. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í ár, án sigurs í síðustu fjórum leikjum, og heilum átján stigum á eftir toppliði Mjällby þegar sex umferðir eru eftir. Mikil hætta er á að liðið missi af Evrópukeppni á næstu leiktíð en liðið er núna í Evrópudeildinni og tapaði þar fyrsta leik fyrir Ludogorets frá Búlgaríu á heimavelli, 2-1 í fyrakvöld. Eftir tapið var ekki að heyra að Rydström hefði neinn áhuga á að hætta: „Ég hef ótrúlega mikinn metnað og áhuga á því að vera hluti af liðinu þegar við náum að snúa þessu gengi við,“ sagði Rydström. Fyrsti þjálfari Daníels í meistaraflokki Aðstoðarmaður Rydström var einnig rekinn og það er ljóst að þeir Daníel Tristan Guðjohnsen og Arnór Sigurðsson munu fá nýjan þjálfara á næstunni. Samkvæmt tilkynningu Malmö er vinnan við það hafin. Daníel, sem er 19 ára og nýorðinn A-landsliðsmaður, lék sína fyrstu leiki í meistaraflokki 2023, undir stjórn Rydström sem hafði tekið við Malmö eftir að íslenski ríkisborgarinn Milos Milojevic var rekinn. Rydström fékk svo Arnór í sitt lið í febrúar síðastliðnum eftir að Arnór hafði fengið samningi sínum við Blackburn rift.
Sænski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira