Þetta eru réttindi þeirra sem eiga bókað með Play Bjarki Sigurðsson skrifar 29. september 2025 10:30 Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. Vísir/Einar Það skiptir máli fyrir þá sem hyggjast fá endurgreitt frá Play vegna flugferðar sem ekki var farið í eftir gjaldþrot félagsins, hvernig greitt var fyrir ferðina. Gjafabréf enda sem kröfur í þrotabú. Play mun seinna í dag óska eftir gjaldþrotaskiptum og skila flugrekstrarleyfi sínu til Samgöngustofu. Öllum ferðum félagsins hefur verið aflýst og fjögur hundruð manns missa vinnuna. Þónokkur fjöldi fólks er með bókaðar flugferðir hjá félaginu á næstu vikum og mánuðum. Fylgst er með nýjustu tíðindum af gjaldþrotinu í vaktinni sem má finna í fréttinni hér fyrir neðan. Hafa samband við bankann Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir það skipta máli hvernig greitt var fyrir ferðina, ef fólk ætlar að fá endurgreitt. „Hafi fólk borgað með greiðslukorti er nærtækast að hafa samband við bankann sem gefur kortið út og óska eftir því að fá færsluna bakfærða. Svokallað „chargeback“. Hafi fólk greitt með gjafabréfi, með millifærslu eða peningum, er yfirleitt ekki annað hægt að gera en að lýsa kröfu hendur félaginu eða þrotabúinu þegar þar að kemur,“ segir Breki. Upplýsingar af vef Samgöngustofu um réttindi farþega við gjaldþrot flugfélaga. Réttarstaða flugfarþega í fjárhagserfiðleikum flugrekenda og ferðaskrifstofa er misjöfn eftir því hvaða þjónusta hefur verið keypt, af hverjum og hvar. Ef flugferð er aflýst vegna gjaldþrots áður en ferðin er hafin er hægt að: lýsa kröfu í þrotabúið sækja endurgreiðslu til greiðslukortafyrirtækis, ef farseðill var greiddur með greiðslukorti Ef farþegi er erlendis þegar flugfélag fer í þrot er hægt að: sækja endurgreiðslu til greiðslukortafyrirtækis, ef farseðill var greiddur með greiðslukorti Mismunandi reglur Flestallir sem greiddu með kreditkorti ættu að geta fengið færsluna bakfærða, en örlítil meiri óvissa er með þá sem greiddu með debetkorti, þar sem bankarnir eru með mismunandi reglur. Þeir sem áttu bókaða flugferð með Play í gegnum ferðaskrifstofu eru ögn öruggari. „Þegar þú ert kominn í pakkaferðir er víðtækari vernd. Ferðaskrifstofan er skyldug til að aðstoða þig við að komast á áfangastað eða heim. Það sem er kannski verst í þessu er ef fólk er strandað einhvers staðar úti í heimi. Þá getur það fengið aðstoð hjá Samgöngustofu og stofnunin aðstoðar fólk við að komast heim aftur. Eða annast milligöngu um það,“ segir Breki. Hægt að leita til Neytendasamtakanna Mikilvægt sé að hafa samband við bankann eða ferðaskrifstofuna sem fyrst til að greiða úr málunum. Breki bendir á að Neytendasamtökin séu einnig innan handar lendi fólk í vandræðum. „Við búumst við því að margir hafi samband við okkur og við erum að uppfæra færslu á vefnum okkar. Við búumst við því líka að Samgöngustofa muni á sínum vef tilkynna fólki um hvernig er best að snúa sér. Annars getur fólk líka fengið upplýsingar á ns.is/flug. Þar eru allar upplýsingar um réttindi flugfarþega,“ segir Breki. Uppfært 29. sept kl 16:25: Indó sendi frá sér tilkynningu í kjölfar þessarar fréttar þar sem staðfest var að þeir sem eru með debetkort hjá fyrirtækinu hafi sama rétt til bakfærslu og þeir sem eru með kreditkort. Sé kort frá VISA, líkt og kort indó, sé rétturinn sá sami og hjá öllum kreditkortafyrirtækum. Neytendur Play Kauphöllin Fréttir af flugi Fjármál heimilisins Fjármálafyrirtæki Gjaldþrot Play Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ölgerðin hækkar verðin Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira
Upplýsingar af vef Samgöngustofu um réttindi farþega við gjaldþrot flugfélaga. Réttarstaða flugfarþega í fjárhagserfiðleikum flugrekenda og ferðaskrifstofa er misjöfn eftir því hvaða þjónusta hefur verið keypt, af hverjum og hvar. Ef flugferð er aflýst vegna gjaldþrots áður en ferðin er hafin er hægt að: lýsa kröfu í þrotabúið sækja endurgreiðslu til greiðslukortafyrirtækis, ef farseðill var greiddur með greiðslukorti Ef farþegi er erlendis þegar flugfélag fer í þrot er hægt að: sækja endurgreiðslu til greiðslukortafyrirtækis, ef farseðill var greiddur með greiðslukorti
Neytendur Play Kauphöllin Fréttir af flugi Fjármál heimilisins Fjármálafyrirtæki Gjaldþrot Play Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ölgerðin hækkar verðin Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira