Um þúsund manns teknir af lífi í Íran það sem af er ári Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. september 2025 07:44 Um það bil helmingur þeirra sem teknir hafa verið af lífi, voru sakaðir um einhvers konar fíkniefnamisferli. Getty Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna hafa harðlega gagnrýnt mikla fjölgun aftaka í Íran en yfir þúsund manns hafa verið teknir af lífi í landinu það sem af er ári.
Um það bil níu hafa verið teknir af lífi með hengingu á degi hverjum síðustu vikur en um helmingur þeirra sem teknir eru af lífi í Íran hafa verið fundir sekir um einhvers konar fíkniefnamisferli. Stjórnvöld í Íran hafa ekki brugðist við gagnrýni SÞ en hafa áður sagt að dauðarefsingin sé aðeins framkvæmd þegar viðkomandi hafa framið verulega alvarlega glæpi. Greint var frá því í gær að Íranir hefðu tekið mann af lífi sem var fundinn sekur um að hafa njósnað fyrir Ísrael. Maðurinn, Bahman Choubi Asl, var sagður gagnasérfræðingur sem hefði unnið að viðkvæmum fjarskiptaverkefnum. Hann hefði reynst útsendari Mossad. Yfirvöld í Íran hafa ekki upplýst um nein sönnunargögn máli sínu til stuðnings. Íran hefur nú tekið ellefu manns af lífi á þessu ári sem hafa verið sakaðir um njósir fyrir Ísrael. Samkvæmt samtökunum Iran Human Rights í Noregi höfðu helmingur þeirra sem teknir hafa verið af lífi verið sakaðir um fíkniefnatengda glæpi, 43 prósent um morð og þrjú prósent um „vopnaða uppreisn gegn ríkinu“ eða „spillingu á jörðu“. Eitt prósent var sakað um njósnir. Af þessum þúsund sem teknir hafa verið af lífi voru 28 konur og 58 afganskir ríkisborgarar. BBC greindi frá.
Sameinuðu þjóðirnar Íran Dauðarefsingar Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira