Sjáðu boltahnupl Valdimars sem nánast tryggði Víkingum titilinn Sindri Sverrisson skrifar 30. september 2025 08:31 Valdimar Þór Ingimundarson lagði upp mark og sokraði svo sigurmark í Garðabænum í gær. vísir/Diego Það er nánast hægt að krýna Víkinga Íslandsmeistara í fótbolta karla 2025 eftir hádramatískan 3-2 sigur þeirra gegn Stjörnunni í toppslag í Garðabæ í gær, í Bestu deildinni. Mörkin úr leiknum má sjá á Vísi.
Sigurinn veitir Víkingi sjö stiga forskot á Val og Stjörnuna á toppi deildarinnar, þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir. Víkingur getur því orðið Íslandsmeistari á heimavelli á sunnudaginn, með sigri gegn FH, og jafntefli myndi þar duga Víkingum ef Valur og Stjarnan gera jafntefli á laugardagskvöld. Víkingar eiga svo einnig eftir leiki við Breiðablik og Val. Mörkin úr Garðabæ í gær má sjá hér að neðan. Klippa: Stjarnan - Víkingur 2-3 Stjarnan komst í 1-0 þegar Örvar Eggertsson skoraði með skalla strax í byrjun, eftir hornspyrnu Samúels Kára Friðjónssonar, en á níundu mínútu voru Víkingar búnir að jafna. Helgi Guðjónsson skoraði þá með viðstöðulausu skoti úr teignum, eftir undirbúning Valdimars Þórs Ingimundarsonar. Víkingar komust svo yfir rétt fyrir hálfleik þega Nikolaj Hansen skallaði boltann í netið, eftir fyrirgjöf Daníels Hafsteinssonar. Á 90. mínútu jafnaði Stjarnan metin þegar Örvar skoraði aftur með skalla, og spenna hlaupin í titilbaráttuna að nýju, en Valdimar nýtti sér svo skelfileg mistök Samúels Kára í vörn Stjörnunnar þegar hann stal af honum boltanum og skoraði sigurmark á sjöttu mínútu uppbótartíma.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Stjarnan Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Körfubolti Fleiri fréttir Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Sjá meira