Herða hreðjatakið á birgðakeðjum Vesturlanda Samúel Karl Ólason skrifar 9. október 2025 20:20 Kínverjar eru með mikla yfirburði á heimsvísu þegar kemur að námugreftri sjaldgæfra málma og vinnslu þeirra. AP/Cinatopix Ráðamenn í Kína tilkynntu í morgun nýja tálma á sölu svokallaðra sjaldgæfra málma og afurða úr þeim auk þess sem tálmar hafa einnig verið settir á útflutning liþíumrafhlaðna og búnaðar til að framleiða þær. Þessir málmar og vörur eins og sérstakir seglar eru nánast eingöngu fáanlegir í Kína og eru gífurlega mikilvægir birgðakeðjum fyrirtækja og ríkja um allan heim.
Erlend fyrirtæki munu þurfa leyfi yfirvalda í Kína til að flytja úr landi sjaldgæfa málma eða vörur sem innihalda lítið magn þeirra og tilkynna í hvað þær vörur eiga að vera notaðar. Tálmarnir nýju munu líklega koma verulega niður á hergagnaframleiðslu og framleiðslu rafmagnsbíla víða um heim. Wall Street Journal hefur eftir talsmönnum viðskiptaráðuneytis Kína að útflutningur sem talinn er vera ætlaður til hergagnaframleiðslu verði líklega ekki samþykktur af ráðamönnum þar. Einhverjir tálmar hafa þegar tekið gildi og aðrir munu taka gildi á komandi vikum. Tálmunum er samkvæmt ráðuneytinu ætlað að tryggja þjóðaröryggi Kína. Aðgengi að sjaldgæfum málmum hefur spilað stóra rullu í viðskiptadeilum Kínverja og Bandaríkjamanna á undanförnum mánuðum. Styrkja stöðu Xi fyrir viðræður við Trump Þessar aðgerðir munu líklega styrkja samningsstöðu Xi Jinping, forseta Kína, sem mun líklega funda með Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í Suður-Kóreu seinna í mánuðinum. Eins og bent er á í frétt BBC endurspegla nýju tálmarnir sambærilegar reglur Bandaríkjamanna varðandi útflutning á háþróuðum tölvuflögum til Kína. Eftir að Trump beitti Kína og fjölmörg önnur ríki heims umfangsmiklum tollum í apríl lýstu ráðamenn í Kína því yfir að útflutningur yrði takmarkaður á nokkrum tegundum sjaldgæfra málma og segla sem eru framleiddir úr þeim. Sjá einnig: Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Slíkir seglar eru notaðir í framleiðslu alls konar vara, eins og snjallsíma og orrustuþotur. Seglarnir eru sérstaklega nauðsynlegir við framleiðslu rafmagnsbíla. Áhugasamir geta horft á nokkurra mínútna langt útskýringarmyndband Reuters um sjaldgæfa málma hér að neðan. Einráðir á einstaklega mikilvægum markaði Sjaldgæfir málmar finnast víða í skorpu jarðarinnar. Þeir eru þó sjaldan í æðum eða á takmörkuðum svæðum, heldur finnast þeir oftar en ekki dreifðir í tilteknu bergi. Vegna þessa getur reynst erfitt að sækja þá í jörðina og þar að auki er vinnsla þeirra erfið og hefur slæm áhrif á umhverfið. Málmarnir eru þó nauðsynlegir við framleiðslu nútímatækja og tóla eins og tölva, bíla, rafhlaðna og hergagna, eins og áður hefur verið nefnt. Kínverjar eru með gífurlegt forskot á heimsvísu þegar kemur að grefti og vinnslu sjaldgæfra málma en vinnslan hefur dregist verulega saman í Bandaríkjunum á undanförnum áratugum. Talið er að Kínverjar grafi um 61 prósent sjaldgæfra málma heimsins úr jörðu. Nánast öll vinnsla þeirra fer þó fram í Kína en Kínverjar eru taldir vera með um 92 prósenta markaðshlutdeild, heilt yfir. Kínverjar eru nánast þeir einu sem framleiða nokkra málma. Sjá einnig: Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Ráðamenn í Kína hafa varið miklum tíma og fjármunum í að skapa sér þessa yfirburðastöðu á markaði sjaldgæfra málma. Forsvarsmenn vestrænna fyrirtækja á sviði hergagnaframleiðslu og framleiðslu rafmagnstækja og rafmagnsbíla, svo eitthvað sé nefnt, hafa átt í verulegum erfiðleikum með að finna nýja seljendur sjaldgæfra málma.
Kína Bandaríkin Tengdar fréttir Óttast áhrif orðræðu Trumps á fjárfesta Námumálaráðherra Grænlands segir að orðræða Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, um kaup eða yfirtöku á Grænlandi gæti haft hræðileg áhrif á fjárfestingar á Grænlandi. Naaja Nathanielsen segir Trump geta skaðað ímynd Grænlands sem stöðugt og auðlindaríkt lýðræðisríki. 15. janúar 2025 13:37 Af hverju langar Trump í Grænland? Donald Trump, sem tekur aftur við embætti forseta Bandaríkjanna þann 20. janúar, hefur ítrekað talað fyrir því undanfarnar vikur að Bandaríkin „eignist“ Grænland. Landið gæti reynst stórveldinu Bandaríkjunum stór fengur í samkeppninni við Kína og Rússland en líklegt er að Trump sækist hvað mest eftir svokölluðum sjaldgæfum málmum. 8. janúar 2025 14:31 Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Yfirvöld í Kína tilkynntu í dag bann við útflutningi nokkurra tegunda svokallaðra „sjaldgæfra málma“ til Bandaríkjanna. Það er í kjölfar þess að ríkisstjórn Joes Biden tilkynnti aðgerðir til að sporna gegn aðgengi Kínverja af mikilvægri tækni frá Bandaríkjunum. 3. desember 2024 23:02 Heimsveldin og auðlindir Grænlands Lantan, gadólín og dysprósín eru málmar sem líklegast fæstir kannast við en koma sífellt meira að okkar daglegu lífum. Líkur eru á því að akkúrat núna megi finna þessa málma, og aðra, einungis sentímetra frá andliti þínu. 4. mars 2021 07:00 Mest lesið Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Viðskipti erlent „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Viðskipti erlent Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Viðskipti innlent Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Viðskipti innlent Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Viðskipti erlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Samstarf Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira
Óttast áhrif orðræðu Trumps á fjárfesta Námumálaráðherra Grænlands segir að orðræða Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, um kaup eða yfirtöku á Grænlandi gæti haft hræðileg áhrif á fjárfestingar á Grænlandi. Naaja Nathanielsen segir Trump geta skaðað ímynd Grænlands sem stöðugt og auðlindaríkt lýðræðisríki. 15. janúar 2025 13:37
Af hverju langar Trump í Grænland? Donald Trump, sem tekur aftur við embætti forseta Bandaríkjanna þann 20. janúar, hefur ítrekað talað fyrir því undanfarnar vikur að Bandaríkin „eignist“ Grænland. Landið gæti reynst stórveldinu Bandaríkjunum stór fengur í samkeppninni við Kína og Rússland en líklegt er að Trump sækist hvað mest eftir svokölluðum sjaldgæfum málmum. 8. janúar 2025 14:31
Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Yfirvöld í Kína tilkynntu í dag bann við útflutningi nokkurra tegunda svokallaðra „sjaldgæfra málma“ til Bandaríkjanna. Það er í kjölfar þess að ríkisstjórn Joes Biden tilkynnti aðgerðir til að sporna gegn aðgengi Kínverja af mikilvægri tækni frá Bandaríkjunum. 3. desember 2024 23:02
Heimsveldin og auðlindir Grænlands Lantan, gadólín og dysprósín eru málmar sem líklegast fæstir kannast við en koma sífellt meira að okkar daglegu lífum. Líkur eru á því að akkúrat núna megi finna þessa málma, og aðra, einungis sentímetra frá andliti þínu. 4. mars 2021 07:00