„Mjög slæmt og erfitt að horfa upp á svona“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 14. október 2025 12:24 Húsnæði Primex stóð í ljósum logum í gær. vísir/hilmar Mikill eldur kom upp í húsnæði Primex á Siglufirði í gærkvöldi og vinnur slökkviliðið enn að því að tryggja vettvang. Framkvæmdastjóri Primex segist hryggur vegna atviksins en um mikilvægasta húsnæði fyrirtækisins er að ræða.
Slökkvilið Fjallabyggðar vann sleitulaust í alla nótt við að ráða niðurlögum eldsins og náði loks tökum á honum um klukkan fimm í morgun. Jóhann K. Jóhannsson slökkviliðsstjóri sagði í samtali við fréttastofu í morgun að eldsupptök væru með öllu óljós en málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu. Ljóst er að um mikið tjón sé að ræða. „Þegar ég kom að sá ég strax í upphafi að það var mjög mikill eldur í húsinu. Þá var allt slökkvilið kallað út en ég kallaði einnig eftir aðstoð frá Dalvík og Akureyri. Það fór töluvert púður í það að verja samtengdar byggingar og sjá til þess að eldurinn myndi ekki færast á milli húsa.“ Slökkviliðið verði á vettvangi í allan dag. „Já, ég á von á því. Við eigum eftir að fá bara frekari aðstoð frá nágrannaliðunum okkar til að koma mönnum í hvíld.“ Húsnæðið sem um ræðir er verksmiðja þar sem lífvirkt trefjaefni eru unnin úr rækjuskel. Vigfús Rúnarsson, framkvæmdastjóri Primex, segir að engin framleiðsla muni fara fram í dag en annars sé ómögulegt að segja til um framhaldið. „Sko, þakið er náttúrulega frekar skemmt. En að öðru leyti getum við í rauninni ekkert sagt til um ástandið enn þá. Við höfum ekki fengið að fara inn og skoða.“ Er þetta mikilvægasta húsnæðið í rekstri fyrirtækisins? „Já, það má segja það.“ Hann vonast til að geta kannað vettvang sem allra fyrst og þakkar fyrir að eldurinn hafi ekki náð að dreifa úr sér. Um áfall sé að ræða. „Já, þetta er náttúrulega bara mjög slæmt og erfitt að horfa upp á svona.“
Fjallabyggð Slökkvilið Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira