Hækkar tolla á kanadískar vörur vegna sjónvarpsauglýsingar Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 25. október 2025 22:30 Auglýsingin fór fyrir brjóstið á honum. AP/Manuel Balce Ceneta Donald Trump hefur heitið því að hækka tolla á vörur frá Kanada um tíu prósentustig vegna auglýsingar sem Ontario-hérað stóð fyrir og var sýnd í bandarísku sjónvarpi. Í auglýsingunni voru spilaðar klippur af Ronald Reagan Bandaríkjaforseta vara við afleiðingum hárra tolla á innflutningsvörur.
Þessu greinir Trump frá í færslu á samfélagsmiðlum en fyrrnefnd auglýsing hefur verið mikið bitbein vestanhafs undanfarna daga. Í færslunni segir Trump einnig að hann hafi ákveðið að slíta samningaviðræðum landanna á milli. Viðskiptasamband Kanada og Bandaríkjanna er eitt það umfangsmesta í heimi en Trump og ríkisstjórn hans hafa þegar lagt 35 prósenta tolla á margar kanadískar vörur. Í auglýsingunni eru spilaðar klippur, að því er Guardian greinir frá, af Ronald Reagan þar sem hann flytur ræðu um skaðleg áhrif hárra tolla á erlendan innflutning á bandarískan efnahag og bandaríska neytendur. „Ronald Reagan elskaði tolla í þágu þjóðaröryggis og efnahagsins, en Kanada sagði að það gerði hann ekki! Auglýsinguna þeirra átti að taka úr útsendingu strax, en þeir sendu hana út í gær á meðan úrslitaleikur MLB-deildarinnar í hafnabolta stóð yfir, meðvitaðir um að hún væri fals,“ segir Trump. Vegna alvarlegrar rangfærslu þeirra og fjandsamlegrar aðfarar ætla ég að hækka tolla á Kanada um 10& umfram það sem þeir greiða þegar,“ segir Trump.
Bandaríkin Kanada Skattar og tollar Donald Trump Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Sjá meira