Vísar slúðrinu til föðurhúsanna Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. október 2025 23:01 Lucas Paquetá hefur verið einn besti leikmaður West Ham undanfarin ár. EPA/DANIEL HAMBURY Hinn brasilíski Lucas Paquetá er enn eina orðaður frá West Ham United. Greint var frá því á dögunum að hann ætlaði sér að yfirgefa félagið í janúar. Segja má að Paquetá hafi svarað því slúðri sjálfur með myndbirtingu á samfélagsmiðlum.
Hinn 28 ára gamli Paquetá gekk í raðir West Ham frá Lyon árið 2022. Þar áður lék hann fyrir Flamengo í heimalandinu og AC Milan. Þá hefur miðjumaðurinn leikið 59 A-landsleiki frá árinu 2018 og skorað í þeim 12 mörk. Eftir frábæra byrjun með West Ham hefur hann ítrekað verið orðaður frá félaginu og var Pep Guardiola nálægt því að fá hann til Manchester City. Rannsókn á meintu broti á veðmálareglum ensku úrvalsdeildarinnar ku hafa komið í veg fyrir þau vistaskipti. Nýverið birti miðillinn The Times frétt þess efnis að Paquetá vildi losna frá West Ham strax í janúar eftir hörmulega byrjun liðsins á leiktíðinni. Brasilíumaðurinn gefur ekki mikið fyrir þær fréttir ef marka má færslu hans á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter. Á myndinni hér að neðan má sjá Paquetá ásamt sonum sínum tveim, og allir eru þeir í búningi West Ham. 😁 pic.twitter.com/5ZZQRTYlvV— Lucas Paquetá (@LucasPaqueta97) October 28, 2025 Stuðningsfólk Hamranna getur því andað léttar en það er þó aldrei að vita hvað gerist ef Man City eða álíka stórlið falast eftir kröftum þessa öfluga miðjumanns.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Enski boltinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira