Viðtökurnar á Anfield munu ekki breyta neinu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 3. nóvember 2025 07:01 Trent Alexander-Arnold hefur verið að glíma við meiðsli en er klár í að mæta uppeldisfélagi sínu. EPA/Mariscal Trent Alexander-Arnold, hægri bakvörður Real Madríd, segir að viðtökurnar sem hann muni fá á Anfield þegar lið hans mætir Rauða hernum muni ekki breyta tilfinningum hans í garð Liverpool.
Á morgun, þriðjudag, tekur Liverpool á móti Real Madríd í Meistaradeild Evrópu. Verður leikurinn sýndur beint á Sýn Sport Viaplay. Verður það í fyrsta sinn sem Trent snýr aftur til Bítlaborgarinnar eftir að hafa yfirgefið Liverpool og gengið í raðir spænska stórliðsins Real Madríd fyrir yfirstandandi tímabil. Var hann gagnrýndur af sumu stuðningsfólki Liverpool fyrir að leyfa samningi sínum að renna út til að hann gæti gengið frítt í raðir Real. Spænska félagið endaði þó á að borga smáupphæð til að hægri bakvörðurinn væri með leikheimild á HM félagsliða sem fram fór síðasta sumar. „Sama hvað þá munu tilfinningar mínar í garð Liverpool ekki breytast,“ sagði hinn 27 ára gamli Trent er hann var spurður út í stórleik morgundagsins. „Ég á minningar sem munu endast mér alla lífstíð og sama hverjar móttökurnar verða þá mun það ekki breytast.“ Alls lék Trent 354 leiki fyrir uppeldisfélagið. Sá síðasti var þegar liðið fékk Englandsmeistaratitilinn í hendurnar. Meistaradeildarmessan hefst klukkan 19.30 annað kvöld á Sýn Sport. Útsending frá Anfield hefst klukkan 19.50 á Sýn Sport Viaplay.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Víkingur - Beer Sheva | Ísraelsmenn mæta í Víkina Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Fylkir – Afturelding | Einum sigri frá bikarúrslitaleik FH – Stjarnan | Tvö heitustu lið deildarinnar mætast Leggur flautuna á hilluna eftir tuttugu ára dómaraferil Stoltur af argentíska liðinu Flækingur fótboltans enn á flakki á milli félaga Gleði Spánverja mældist á jarðskjálftamælum Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu „Þetta lítur bara illa út“ Svaf ekki fyrir fagnaðarlátum á Spáni Segir búið að ákveða að það verði 64 þjóðir á næsta HM Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Giskaði á réttan sigurvegara HM í fimmta skiptið í röð Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Jóhann Kristinn Gunnarsson: ,, Við þurfum að gera eitthvað róttækt í málunum” Gylfi Tryggvason : ,,Ótrúlega stoltur af stelpunum” Sjá meira