Formúla 1

Lewis Hamilton segist vera fastur í mar­tröð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lewis Hamilton ætlaði að upplifa drauminn með að keyra fyrir Ferrari en tímabilið hefur breyst í martröð.
Lewis Hamilton ætlaði að upplifa drauminn með að keyra fyrir Ferrari en tímabilið hefur breyst í martröð. Getty/Kym Illman

Lewis Hamilton hefur átt erfitt fyrsta tímabil hjá Ferrari í formúlu 1 og ekki batnaði það neitt í brasilíska kappakstrinum um helgina.

Hamilton náði aðeins þrettánda sæti í tímatökunni og keyrði svo aftan á Franco Colapinto hjá Alpine í lok fyrsta hringsins í keppninni. Sjöfaldi heimsmeistarinn braut framvænginn, datt niður í síðasta sæti og neyddist svo til að hætta keppni vegna óbætanlegra skemmda sem hann hlaut í árekstrinum.

Dómarar keppninnar úrskurðuðu ofan á allt saman að hann bæri sjálfur fulla ábyrgð á árekstrinum. Hamilton fékk því fimm sekúndna refsingu og eitt refsistig.

„Þetta er martröð og ég hef lifað hana um stund,“ sagði hinn fertugi Lewis Hamilton eftir keppnina.

„Sveiflan milli draumsins um að keyra fyrir þetta magnaða lið og svo martraðarinnar vegna úrslitanna sem við höfum fengið, hæðirnar og lægðirnar, þetta er krefjandi,“ sagði Hamilton.

„Þessi helgi hefur verið hörmuleg og vonbrigði fyrir alla. Ég reyni að halda höfðinu yfir vatni og vera jákvæður,“ sagði Hamilton.

Hamilton hefur nú ekki enn náð á verðlaunapall í 21 keppni fyrir Ferrari eða frá því hann flutti sig um set frá Mercedes með miklu fjaðrafoki. Hann er 66 stigum á eftir liðsfélaga sínum Charles Leclerc, sem var í þriðja sæti þegar hann féll úr keppni.

Hamilton hélt áfram: „Charles stóð sig frábærlega í tímatökunni, svo það er einhver afkastageta í þeim bíl,“ sagði Hamilton og hann er ekki búinn að missa alla von.

„Á þessum tímapunkti verð ég að trúa því að eitthvað komi út úr öllum þessum erfiðleikum sem við höfum gengið í gegnum. Ég er viss um að okkur er ætlað eitthvað jákvætt í framtíðinni,“ sagði Hamilton.

„Kannski erum við að klára alla óheppnina okkar á þessu ári, hver veit? Við munum ekki gefast upp og komum aftur til leiks í næstu keppni,“ sagði Hamilton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×