Skilja töskur eftir ef von er á kröftugum mótvindi Lovísa Arnardóttir skrifar 18. nóvember 2025 23:15 Guðni segir þetta ekki gerast oft. Vísir/Anton Brink Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Icelandair segir ferðatöskur skildar eftir á áfangastað ef vélin er orðin of þung og það sé spá um mikinn og kröftugan mótvind. Það gerist ekki oft en líklegra sé að það gerist ef flugin eru löng. „
Við plönum flugið ekki svona en það er hins vegar þannig að þegar að það er sterkur mótvindur lengist eðlilega flugleiðin og þessi tilfelli koma upp þannig,“ segir Guðni og að þá séu þyngdartakmarkanir á farmi flugvélar. Félagið taki frekar farm en farþega af fluginu. Guðni fór yfir þessi mál í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Tilefnið var spurning sem þáttastjórnendum barst um þetta í tengslum við flug frá Orlando í lok október. „Það er í raun það sem við getum gert til að bregðast við þessu,“ segir hann og tekur sem dæmi flug þann 31. október frá Florida þar sem flugleiðin lengdist um 35 mínútur við slíkar aðstæður. „Þetta er ekki eitthvað sem við gerum venjulega, heldur í þessum tilfellum, þegar það er mótvindur,“ segir Guðni og að þetta sé öryggisatriði. Það séu kröfur og útreikningur og félagið verði að gera þetta. Hann segir að í þessu tilfelli hafi þær töskur sem voru skildar eftir farið með flugi daginn eftir til Orlando og verið ekið beint til gististaða fólks. Hann segir þetta ekki gerast oft en það sé líklegra að þetta gerist á lengstu flugleiðunum. Flugið til Orlando sé til dæmis sjö tímar. Hann segir starfsmenn fá fyrirmæli um hversu margar eigi að taka úr fluginu og það sé bara happdrætti hverjar eru teknar.
Fréttir af flugi Reykjavík síðdegis Bandaríkin Neytendur Icelandair Keflavíkurflugvöllur Ferðalög Mest lesið Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Sjá meira