Á Hvömmum er lífið allt nema einfalt Lestrarklefinn 24. nóvember 2025 10:07 Nýjasta bók Nönnu Rögnvaldar, Mín er hefndin, er til umfjöllunar í Lestrarklefanum. Jana Hjörvar tekur nýjust bók Nönnu Rgnvaldardóttur fyrir í Lestrarklefanum. Hún hefur þetta að segja um bókina.
Fyrir tveim árum kom Nanna Rögnvaldardóttir mörgum á óvart þegar hún sendi frá sér sögulega skáldsögu fyrir jólin í stað sinnar vanalegur matreiðslubókar. Sú bók var Valskan, fyrsta sögulega skáldsagan sem Nanna sendi frá sér og heillaði hún undirritaða upp úr skónum. Í fyrra kom út önnur söguleg skáldsaga frá henni sem var alls ótengd Völskunni. Það var bókin Þegar sannleikurinn sefur sem aftur heillaði undirritaða uppúr skónum. Í þeirri bók breytti Nanna aðeins um stíl og skrifaði sögulega skáldsögu sem var jafnframt ástar- og glæpasaga. Nú hefur hún sent frá sér sjálfstætt framhald þeirrar sögu, Mín er hefndin. Aftur á Hvamma og ný ráðgáta Í Mín er hefndin erum við aftur komin að Hvömmum þar sem húsfreyjan Bergþóra býr ásamt börnum og vinnufólki og aftur hefur Bergþóra gengið fram á lík á víðavangi. Í þetta sinn er það karlmaður sem hefur verið ráðinn bani. Maður sem mörgum af sveitungum Bergþóru var illa við svo það eru margir sem geta legið undir grun um morðið. Nokkru áður en Bergþóra gekk fram á lík mannsins höfðu farið fram umdeild réttarhöld þar sem einstaklingar í slæmri þjóðfélagslegri stöðu hlutu þungar refsingar fyrir lítilsháttar brot. Sá látni tengist þeim réttarhöldum og aðrir einstaklingar líka sem mögulega kunna einnig að vera í hættu. Hafi man lesið Þegar sannleikurinn sefur þá er borðleggjandi að lesa þetta sjálfstæða framhald hennar. Nanna ferðast aftur með okkur til 18. aldar og lýsir lífsháttum tímabilsins af mikilli nákvæmni: húsakosti, mataræði, daglegu amstri og aðstöðumun eftir ættum og eignum. Á sama tíma fylgjum við Bergþóru eftir í sögunni þegar hún tekst á við ráðgátuna og vindur ofan af flóknu sakamáli þar sem samfélagslegar aðstæður og mannleg breyskni fléttast saman. Það sem gerir þessar bækur sérstaklega skemmtilegar í íslensku samhengi er hvernig Nanna nýtir sögulegt efni sem vettvang fyrir glæpasögu. Við eigum ríka hefð fyrir sögulegum skáldsögum og fyrir glæpasögum en að blanda þessu tvennu saman er ekki algengt. Umfjöllunina í heild sinni má lesa hér. Fleiri ritdóma er að finna á Lestrarklefinn.is
Menning Bókmenntir Mest lesið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Jóhanna Vigdís greindist með MS Lífið Fór alla leið inn í hausinn á konu sem treystir ekki eigin skynjun Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Fleiri fréttir Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira