Gæti þýtt aukna viðveru NATO hér á landi Smári Jökull Jónsson skrifar 27. nóvember 2025 11:55 Frá undirritun samningsins í morgun. Vísir/Lýður Í dag var undirritaður samningur um uppbyggingu mannvirkja í Helguvík í samstarfi við Atlantshafsbandalagið og nemur fjárfesting NATO allt að tíu milljörðum króna. Utanríkisráðherra segir framkvæmdina sýna að Ísland sé verðugur bandamaður innan NATO.
Samningurinn var undirritaður í Hljómahöll í Reykjanesbæ og undir hann skrifuðu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisáðherra, Kjartan Kjartansson bæjarstjóri í Reykjanesbæ og Halldór K. Hermannsson hafnarstjóri Reykjaneshafnar. Áætlað er að framkvæmdin ein og sér skapi um eitt hundrað störf, hefjist seinni hluta næsta árs og ljúki árið 2029. Mannvirkjasjóður NATO fjármagnar þessa framkvæmd en byggja á 390 metra viðlegukant í höfninni í Helguvík sem og 25 þúsund rúmmetra birgðageymslu fyrir skipaeldsneyti og mun hún nýtast flota Atlantshafsbandalagsins í Norður-Atlantshafi. Ísland er verðugur bandamaður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði framkvæmdina sýna fram á að Ísland er verðugur bandamaður innan NATO auk þess sem hún eflir varnir og öryggi á svæðinu. Hún gæti líka þýtt aukna viðveru herafla frá ríkjum NATO hér á landi. „Mér finnst það líklegra heldur en ekki en það sem við erum fyrst og fremst að gera að tryggja, út frá okkar mikilvægu landfræðilegu legu, að við erum tilbúin að þjónusta ýmsa starfsemi og tryggja ýmsa starfsemi sem eykur öryggi á þessu svæði sem skiptir okkur mjög máli,“ sagði Þorgerður Katrín í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Hún undirstrikaði mikilvægi Íslands í NATO í ljósi landfræðilegrar legu landsins og að mikilvægt væri að tryggja öryggir og varnir líkt og hafi verið gert með samstarfsyfirlýsingum við bæði Finna og Þjóðverja. Uppbygging mun halda áfram Þorgerður Katrín segir að frekari framkvæmdir séu á döfinni. „Við ætlum okkur að halda áfram til að mynda að byggja upp okkar innviði á öryggissvæðinu í Keflavík. Við þurfum til lengri tíma að skoða ratsjárkerfin, þau þurfa uppfærslu innan tíu ára þannig að það eru mörg stór og umfangsmikil verkefni sem við stöndum frammi fyrir og þurfum að fara í og ekki síst í samstarfi við NATO.“ „Þetta er hluti af því sem við getum lagt til að vera öflugur gestgjafi, að vera þjóð sem getur tekið vel á móti þeim sem senda með mjög miklum tilkostnaði flugvélar og sveitir í loftrýmisgæslu, kafbátaleit og svo framvegis. Það er svolítið á okkar ábyrgð að sjá til þess að þjónustan sé framúrskarandi sem hún er og það hefur verið einstakt samstarf við landhelgisgæsluna.“ Mikilvægt að leiðtogarnir sjái hvað Ísland hafi fram að færa Undirritunin á sér stað sama dag og Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, kemur í heimsókn hingað til landsins. Þorgerður Katrín sagði komu hans mikilvæga í að sýna þátt Íslands innan Atlantshafsbandalagsins. Hún segist ekki þurfa að sannfæra Rutte um mikilvægi Íslands og frekari fjárfestingu hér á landi. „Það er mikilvægt að þeir leiðtogar, bæði innan NATO og líka aðildarríkjana, að þau sjái hvað við höfum fram að færa. Þetta viðnámsþol sem við Íslendingar höfum mikið af og höfum lært af meðal annars í glímu við náttúruöflin.“ „Ég held að við sjáum það að ógnin sem er mjög afgerandi af hálfu Rússa og annarra ríkja, sem eru ekki endilega bestu vinir NATO, hún er til staðar og fer ekki minnkandi. Þá verður NATO og NATO-ríkin að sýna að við erum tilbúin og að við séum með ákveðinn fælingarmátt sem felst í því að við erum með öfluga starfsemi hér á Íslandi og öllu svæði hér í kringum okkur. Þetta skiptir okkur Íslendinga gríðarlega miklu máli.“ Hún segir ánægju ríkja með það sem Ísland hefur haft fram að færa í NATO-samstarfinu. „Á þessu tæpa ári sem ég hef verið í embætti er gott að finna, hvort sem það eru Tékkar, Spánverjar, Belgar eða þær þjóðir sem hafa komið hingað með gríðarlega mikinn mannskap, að þær eru mjög ánægðar með alla umgjörð og alla þjónustu og við höfum metnað í það að vera framúrskarandi á þessu sviði.“
Reykjanesbær Keflavíkurflugvöllur Utanríkismál NATO Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira