„Þetta lítur verr út en þetta var“ Kári Mímisson skrifar 27. nóvember 2025 22:09 Gunnar Magnússon sá sína menn tapa stórt á gamla heimavellinum í kvöld. VÍSIR/VILHELM Gunnar Magnússon þjálfari Hauka var gríðarlega vonsvikinn með leik sinna manna í kvöld þegar hann mætti á sinn gamla heimavöll í Mosfellsbæ þar sem Afturelding vann afar sannfærandi níu marka sigur í kvöld.
Gunnar segir að hann eigi margar góðar minningar úr Mosfellsbænum en leikurinn í dag er vissulega ekki ein af þeim. „Þetta er sjaldgæf minning, ég skal bara viðurkenna það. Leikurinn var auðvitað gríðarleg vonbrigði og ekki í takt við okkar spilamennsku síðustu vikur. Auðvitað lítur samt allt illa út þegar þú ert með mann hinu megin sem hreinlega tekur allt úr þér. Þannig að þetta lítur verr út en þetta var. Hann tók okkur og jarðaði okkur algjörlega í markinu,“ sagði Gunnar Magnússon. Kemur einhver hræðsla yfir okkur Lið Hauka gjörsamlega brotnaði um miðbik fyrri hálfleiksins og sá í raun aldrei til sólar það sem eftir var af leiknum. Gunnar segir að sóknarlega hafi liðið spilað fínt en farið illa með mörg dauðafæri sem hafi dregið verulega úr liðinu. Þá vill hann meina að varnarlega hafi liðið ekki sýnt sitt rétta andlit allan leikinn. „Það molnar undan okkur hægt og rólega. Það kemur einhver hræðsla yfir okkur og við vorum í raun bara mjög ólíkir sjálfum okkur hér í dag. Þá vorum við líka linir varnarlega og ekki neitt nálægt því sem við höfum verið síðustu vikur. Ég þarf að skoða af hverju það gerist. Við erum vissulega með marga tapaða bolta en einnig með sóknarleik til að skora 35 mörk. Við fengum góð færi en þurfum að klára þau líka. Mér fannst við varnarlega vera linir allan tímann, líka í byrjun þegar þetta var jafnt og vanta alla grimmd í okkur allan leikinn. Við reyndum allan fjandann en náðum okkur aldrei neinu almennilegu áhlaupi á þá þar sem við fórum illa með þessi dauðafæri.“ Þrátt fyrir tapið eru Haukar enn á toppnum ásamt Val sem unnu Stjörnuna í kvöld. Gunnar telur að liðið geti enn bætt sig og þurfi að læra af leiknum í kvöld. Bæði hann og liðið sé enn að læra og eigi eftir að koma sterkari til baka eftir þennan leik. Sjálfur er ég að læra mikið á drengina „Eins og ég er búinn að vera að segja þá tel ég okkur eiga enn nóg inni. Það hefur auðvitað gengið ágætlega að safna stigum og við erum á toppnum ásamt Val. Ég er aldrei fullkomlega ánægður og vil meina að við eigum nóg inni. Ég hef mikla trú á þessum drengjum en við höfum lært mikið af þessum tapleikjum og nýtt okkur þá sem lærdóm. Sjálfur er ég að læra mikið á drengina og lærði mikið af þessum leik í kvöld. Þetta er maraþon, í kvöld misstigum við okkur en Afturelding var betri en við á öllum sviðum og átti sigurinn fullkomlega skilinn. Skaðinn er skeður og það eina sem við getum gert núna er að læra af þessum leik og komið sterkari til baka enn betri.“
Olís-deild karla Haukar Afturelding Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Íslenski boltinn Fleiri fréttir Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Sjá meira