Reiður eftir ásakanir um svindl: „Hversu heilalaus þarftu að vera?“ Sindri Sverrisson skrifar 1. desember 2025 08:08 Lando Norris var fyrir aftan Kimi Antonelli þar til á næstsíðasta hringnum að hann komst fram úr. Getty/Clive Mason Toto Wolff, framkvæmdastjóri Formúlu 1 liðs Mercedes, lýsti verkfræðingi Red Bull liðsins sem „heilalausum“ eftir ásakanir um svindl í lokin á næstsíðustu keppni tímabilsins í gær.
Mikil spenna er fyrir lokakappakstrinum eftir að Max Verstappen hjá Red Bull fagnaði sigri í gær og minnkaði forskot Lando Norris niður í tólf stig. Hins vegar væri munurinn aðeins tíu stig ef að Norris, sem ekur fyrir McLaren hefði ekki komist fram fyrir Kimi Antonelli hjá Mercedes á næstsíðasta hringnum, og komist upp í fjórða sæti. Margir virtust telja að þarna væri um spillingu að ræða og að Antonelli hefði hreinlega hleypt Norris fram úr sér því að Mercedes vildi hjálpa McLaren. Þannig var það alla vega með Gianpiero Lambiase, keppnisverkfræðing hjá Red Bull, sem sagði við Verstappen í gegnum talstöðina að „Antonelli hefði vikið til hliðar og hleypt Norris framhjá“. Toto Wolff has hit back at claims that Kimi Antonelli let Lando Norris past on the final lap of the #QatarGP 🗣️ pic.twitter.com/hKpVemVzvw— Autosport (@autosport) November 30, 2025 Wolff var reiður yfir þessu og taldi ummælin hafa valdið því að margir fóru á flug á samfélagsmiðlum. „Þetta er algjört kjaftæði. Maður botnar ekkert í því að heyra svona lagað,“ sagði Wolff. „Við erum í baráttunni um 2. sæti í keppni bílasmiða, sem er mikilvægt fyrir okkur. Kimi var að berjast um að ná mögulega 3. sæti. Hversu heilalaus þarftu að vera til að segja eitthvað svona? Þetta angrar mig því ég er líka argur yfir því hvernig keppnin fór. Ég er svekktur yfir mistökunum í lokin. Ég er svekktur yfir fleiri mistökum og maður er furðu lostinn þegar maður heyrir svo eitthvað svona,“ sagði Wolff. Hann sagði Lambiase svo hafa beðist afsökunar á ummælum sínum og sagst ekki hafa séð hvernig það gerðist að Norris komst fram úr Antonelli. Sjálfur kvaðst Antonelli ansi svekktur að hafa endað fimmti eftir að hafa verið svo nálægt því að komast á verðlaunapalll.
Akstursíþróttir Mest lesið Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Íslenski boltinn Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Vandræðaleg auglýsing og köld kveðja Sport Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Íslenski boltinn Heimsmeistari hélt að hún væri með tíðaverki en endaði á sjúkrahúsi Sport Úkraína - Ísland | Stelpurnar okkar geta tekið risaskref í átt að HM Fótbolti Ekki Andabæjarútgáfa af norskri menningu Fótbolti Fleiri fréttir Fleiri lið reyndu að sækja Leclerc Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Þykja Alpine liðið vera of dýrt Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Gætu þurft að stíga inn í eftir harða baráttu liðsfélaganna Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Max Verstappen rétt missti af sigri Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Sjá meira