Skoðar sín mál eftir að stuðningsmenn kveiktu í vellinum Valur Páll Eiríksson skrifar 3. desember 2025 09:00 Arnór Ingvi íhugar næstu skref eftir skrautlega helgi. Samsett/Vísir Landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason íhugar næstu skref eftir fall liðs hans Norrköping niður um deild í Svíþjóð. Stuðningsmenn kveiktu í heimavellinum eftir fallið.
Arnór Ingvi er á meðal reynslumeiri leikmanna Norrköping, og jafnframt bæði leiðtogi og lykilmaður innan liðsins. Hann lék upprunalega með liðinu um þriggja ára skeið fyrir um áratug og varð þá sænskur meistari árið 2015. Hann samdi aftur við liðið 2022 og hefur leikið yfir 100 leiki fyrir Norrköping síðan. Í ár þurfti hann að bíta í heldur súrara epli en áratugi fyrr, þar sem er liðið féll úr efstu deild. „Þegar eru sex leikir eftir telja margir að við séum í svokölluðu safe zone. En okkur tekst að tapa öllum þessum sex leikjum sem eftir eru og lendum í þessari stöðu. Það fór sem fór. Þetta er mjög svekkjandi,“ segir Arnór Ingvi en Norrköping tapaði samanlagt 3-0 fyrir Örgryte í umspili um fall. Grasið logaði á heimavelli Norrköping og blysum fleygt inn á áður en leiknum var lokið. Gera þurfti hlé áður en hann var kláraður.Skjáskot „Þetta var mjög þungt eftir leik. Fyrri leikurinn náttúrulega tapast 3-0 og það er alveg brekka að vinna það upp. Við höfðum samt tröllatrú á þessu,“ „En manni fannst þetta hafa verið viðloðandi í mörg ár. Án þess að fara út í smáatriði, þá hefur þetta verið á leiðinni. Margir hérna í bænum hafa sagt að það hlyti að koma að þessu. En að vera hluti af þessu er ekki skemmtilegt og að hafa þetta á sinni ferilskrá,“ segir Arnór Ingvi. Stuðningsmenn skutu einnig flugeldum úr stúkunni.Skjáskot Kveiktu í grasinu Stuðningsmenn liðsins brugðust ókvæða við eftir heimaleikinn við Örgryte sem tryggði fallið, köstuðu blysum inn á völl og kveiktu í grasinu. „Það er vont að fara inn á þetta með stuðningsmennina hérna í Svíþjóð. Mér finnst þetta eigi ekki heima í fótbolta, að eyðileggja leikinn með þessum hætti. Það er allt í góðu að vera með læti uppi í stúku en svo lengi sem þetta hafi ekki áhrif á fótboltaleiki sem eru í gangi. Ef þetta er farið að hafa þau áhrif og ég tala ekki um að brenna grasið – þá er þetta komið yfir strikið.“ Klippa: Stuðningsmenn Norrköping fleygja blysum á völlinn Vekur þetta ótta hjá leikmönnum? „Eflaust hjá einhverjum. Þó ekki þannig. Ég held þessu sé ekki mikið beint gegn leikmönnum sérstaklega. Þetta sé óánægja hjá þeim gegn bæði okkur en líka klúbbnum,“ segir Arnór Ingvi. Enn með samning en lítur í kringum sig Arnór Ingvi íhugar nú næstu skref en gera má ráð fyrir að hann færi sig um set. „Ég er með samning út næsta tímabil líka. En ég ætla að setjast niður með fjölskyldunni og mínu fólki og sjá hvað er best fyrir okkur. Ég mun svo taka ákvörðun út frá því. Ég hef ekki spáð of mikið í það en á eftir að skoða þetta betur,“ segir Arnór Ingvi. Viðtal við Arnór Ingva má sjá í spilaranum efst.
Sænski boltinn Svíþjóð Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira