Brjálaðist og sendi dómarann á sjúkrahús Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. desember 2025 21:01 Ítalska stórblaðið La Gazzetta dello Sport fjallaði um bræðiskast leikmannsins. @gazzettadellosport Knattspyrnumaður á Ítalíu gjörsamlega brjálaðist út í dómara leiks. Hann hótaði dómaranum á vellinum fyrst en beið svo færist í hálfleik til að ráðast á hann.
Leikmaðurinn var ævareiður yfir því að hafa fyrst fengið áminningu og síðan verið vísað af velli. Hann mótmælti dómaranum og kom í veg fyrir að leikurinn gæti haldið áfram í nokkrar mínútur. Eftir að hafa yfirgefið völlinn beið hann eftir hálfleiknum til að ná í dómarann nálægt búningsklefunum. Þar kýldi hann dómarann í andlitið svo hann missti meðvitund. Þetta gerði hann þrátt fyrir að liðsfélagar hans reyndu að draga hann í burtu. Atvikið átti sér stað í héraðsleik í futsal (innanhússknattspyrnu) milli Calcetto Clark Udine og Manzano C5, í sjöttu umferð C-deildarinnar í Udine. Sökudólgurinn er leikmaðurinn Grance Shimba Olamba, úr liði Clark. Hann flúði eftir árásina á dómarann Stefano Tomasetig frá Udine-deildinni. Dómarinn féll í jörðina eftir höggið og rak höfuðið í. Eftir fyrstu læknisaðstoð fór hann á bráðamóttöku en þar kom í ljós að hann ætti að ná sér á nokkrum dögum. Forseti Clark, Giancarlo Tirindelli, hefur tilkynnt að leikmaðurinn hafi verið rekinn úr félaginu. Íþróttadómstóll mun dæma um hegðun knattspyrnumannsins, en ekki er útilokað að hann verði einnig kærður. Hann verður væntanlega dæmdur í mjög langt bann. View this post on Instagram A post shared by La Gazzetta dello Sport (@gazzettadellosport)
Ítalski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Sjá meira