Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Árni Sæberg skrifar 17. desember 2025 16:19 Jón Finnbogason er framkvæmdastjóri Stefnis. Stefnir, sem rekur sex sjóði fyrir verktaka sem bjóða upp á svokallað sameignarform í fasteignaviðskiptum, hefur gjörbreytt forminu í kjölfar breytinga sem Seðlabankinn gerði nýverið á lánþegaskilyrðum. Breytingarnar fela í sér að leiga fyrir eignarhlut verktakans verður greidd mánaðarlega í stað þess að safnast upp.
Í tilkynningu á vef Stefnis segir að með þessu sé komið til móts við ákvörðun fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans um að herða lánþegaskilyrði vegna sameignarsamninga. „Sameignarformið mun áfram nýtast fólki við að komast inn á markaðinn með minna eiginfjárframlagi með því að byggingaraðili verður meðeigandi íbúðarinnar en greiðslubyrðin eykst sem nemur mánaðarlegri húsaleigu til meðeigandans. Húsaleigan mun greiðast með hefðbundnum hætti í upphafi hvers mánaðar, líkt og tíðkast á almennum leigumarkaði.“ Auki líkur á að vandað sé til verka Þá bæti það stöðu kaupenda að byggingaverktakar fylgi sínum eignum eftir til tíu ára í gegnum eignarhald í sjóði. Með því séu líkurnar enn meiri að um sé að ræða vandaðar eignir, að því er segir í tilkynningu Stefnis. Þeir byggingaraðilar sem bjóði upp á sameignarformið séu Reir verk, ÞG, Kauplykill, Safír, Umbra og Öxar. „Fleiri munu væntanlega bætast við á næstu vikum en viðtökur fasteignarkaupenda við þessum nýja valkosti hafa verið afar góðar.“ Verði einfaldara og aðgengilegra Leiguverð sameignaríbúða sem seldar verða á þennan hátt verði nú ekki lengur bundið við hlutfall af kaupverði heldur föst fjárhæð. Leiguverð geti þannig verið mismunandi milli fasteigna og sjóða, sem stuðli að aukinni samkeppni um hagstæð kjör. Leigufjárhæðin sjálf verði verðtryggð líkt og almennt tíðkast í langtíma leigusamningum, enda verði um tíu ára leigusamninga að ræða. Sjóðirnir sem eru í eigu byggingaraðila en í rekstri Stefnis kaupi ýmist 20 til 25 prósenta hlut í fasteignum með kaupendum. Greitt sé fyrir hlut meðeigandans með mánaðarlegri leigugreiðslu sem tekið sé tillit til við greiðslumat kaupenda. Breytingunum sé ætlað að stuðla að því að sameignarformið verði aðgengilegra og einfaldara í framkvæmd. „Með breytingunum er ársleiga ekki lengur miðuð við fimm prósetn af kaupverði sjóðanna auk þess sem frestun á greiðslu húsaleigu er felld brott og þar með uppsöfnun ógreiddrar húsaleigu. Báðir þættir draga úr áhættu meðeigenda á þróun fasteignaverðs. Gerður verður einfaldur leigusamningur á milli meðeiganda og sjóðanna sem kemur til móts við ábendingar um að sameignarformið kunni að vera flókið fyrir kaupendur að átta sig á.“
Byggingariðnaður Fasteignamarkaður Fjármálafyrirtæki Húsnæðismál Seðlabankinn Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira