Neytendur

„Áhyggju­efni ef fyrir­tækin mæta þessu með semingi“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Páll Gunnar er forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Páll Gunnar er forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Vísir/Arnar/Vilhelm

Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir neytendur eiga heimtingu að niðurfelling opinberra gjalda á eldsneyti skili sér til þeirra að fullu. Ekki sé nóg að lækkun eigi sér stað heldur þurfi að skoða verðþróun í aðdraganda breytinganna sem og því sem gerist í kjölfarið.

Í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins í gær sem og í umsögnum stofnunarinnar um frumvarpið var vakin athygli á fákeppnisaðstæðum á eldsneytismarkaði og vísbendingum um að samkeppni sé takmarkuð. Jafnframt að óráðlegt sé af stjórnvöldum að ganga út frá því að niðurfelling opinberra gjalda skili sér að öllu leyti í lægra verði til neytenda. 

Samkvæmt útreikningum FÍB ætti eldsneytisverð að lækka um tugi króna um áramót þegar lög um kílómetragjald taka gildi.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir eftirlitið alltaf haft áhyggjur af þessum markaði. Fyrirtækin þekki hvert annað vel og geti samhæft starfsemi án þess að vera með samráð.

„Á slíkum mörkuðum þarf að fylgjast mjög vel með breytingum af þessu tagi vegna þess að það er ekki hægt að gefa sér sjálfkrafa að að samkeppnin dugi til þess að að ná fram þeirri lækkun sem að löggjafinn hafði, hafði gert ráð fyrir,“ sagði Páll í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Skoða þurfi verðþróun heimsmarkaðsverðs

ASÍ benti á í frétt hjá RÚV í gær að neytendur ættu inni frekari lækkanir þar sem eldsneytisverð hafi ekki lækkað í takt við þróun heimsmarkaðsverðs.

„Við höfum ekki skoðað það sérstaklega en við vitum að FÍB og ASÍ hafa verið að fylgjast með þessu og þeim ákvörðunum sem við teljum að taka þurfi með í reikninginn. Það er búið að standa lengi fyrir dyrum að gera þessar breytingar og ef álagningin hefur hækkað hjá félögunum í aðdraganda breytinganna, þá er það eitthvað sem skoða þarf sérstaklega.“

Skoða þurfi hvort álagning hafi aukist í aðdraganda breytinganna

Fram hefur komið að fyrirtæki á eldsneytismarkaði séu að skoða hversu mikil lækkun eldsneytis verður. Páll segir að breytingar sem þessar eigi að leiða til tækifæra fyrir fyrirtækin að ná markaðshlutdeild með því að bjóða betra verð. Neytendur eigi heimtingu á að niðurfelling opinberra gjalda skili sér til þeirra að fullu.

„Það er auðvitað áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi. Svo er það svolítið þeirra að sýna fram á ef þau telja að það sé ekki innistæða fyrir þessari lækkun sem löggjafinn, FÍB og við gerum ráð fyrir þá er það þeirra að sýna fram á af hverju það er.“

Gera þurfi ráð fyrir á þessum tíma að lækkunin muni skila sér. Skoða þurfi þróunina til lengri tíma.

„Það dugir ekki bara að lækkunin eigi sér stað núna um áramótin, heldur kann að þurfa að skoða hvað er búið að gerast í aðdraganda þessara breytinga, hvort að álagningin hefur aukist hjá félögunum. Og svo líka hvað gerist eftir breytingarnar,“ sagði Páll að lokum.


Tengdar fréttir

Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum

Formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir nýsamþykkt lög um kílómetragjald helst bitna á eigendum sparneytinna eldsneytisbíla. Hann segir breytinguna furðulega þar sem hún sé ekki í þágu vistvænna samgangna.

Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót

Viðbrögð olíufélaganna við breytingum á bifreiðagjöldum um áramótin eru prófsteinn á samkeppni á eldsneytismarkaðnum. Þetta segir Samkeppniseftirlitið sem segir það algera lágmarkskröfu að lækkun eldsneytis samsvari að fullu lækkun hinna opinberu gjalda og hvetur viðskiptavini til að vera á varðbergi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×