Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. desember 2025 10:40 Jeffrey Epstein í mars 2017. AP/Kynferðisbrotamannaskrá New York Bandarísk stjórnvöld hafa fundið yfir milljón skjöl sem gætu tengs máli barnaníðingsins Jeffrey Epstein. Þó nokkur skjöl hafa verið birt opinberlega og stendur til að birta nýju skjölin.
Alríkislögreglan og saksóknarar í New York létu Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna vita af skjölunum. Unnið sé hart að því að fara yfir skjölin og taka út allar upplýsingar til að vernda fórnarlömb Epstein. Sú vinna gæti tekið nokkrar vikur. Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði lög í nóvember sem skyldaði ráðuneytið til að birta öll Epstein-skjölin opinberlega fyrir 19. desember. Ráðuneytið hefur verið gagnrýnt fyrir að vera ekki búið að birta öll skjölin. Þá hefur það einnig verið gagnrýnt fyrir að máða út upplýsingar. Hundruð blaðsíðna eru alveg svartar og segir ráðuneytið að það sé til að vernda fórnarlömbin. Þeir sem gagnrýna ákvörðunina segja að með nýju lögunum megi einungis fjarlægja upplýsingar um auðkenni fórnarlambanna og það sem tengist rannsóknum sem eru nú þegar í gangi. Skjölin hafa hingað til verið birt í hollum en í þeim eru tölvupóstar, myndir, myndbönd og skjöl sem tengjast rannsókn í máli Epsteins. Í því fyrsta, sem var birt 19. desember, kom ekki mikið nýtt fram en nokkrar myndir af frægu fólki voru áberandi, þar á meðal Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Í öðrum hluta skjalanna, sem var birtur á Þorláksmessu, var tölvupóstur þar sem A biður Ghislaine Maxwell, fyrrverandi kærustu Epstein og aðstoðarkonu hans, um „óviðeigandi vinkonur“. Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi prins í Bretlandi, er grunaður um að vera A. Mountbatten-Windsor, betur þekktur sem Andrés prins, var sviptur titli sínum fyrr á árinu en hann var sakaður um að taka þátt í misnotkun Epstein á ungum stelpum.
Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira