ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar 28. desember 2025 22:00 Þann 26. desember 2025 birtist grein á Vísi.is eftir Hjört J. Guðmundsson, sagnfræðing og alþjóðastjórnmálafræðing, sem nefnist „Fleiri ásælast Grænland en Trump“.[1] Í stað þess að rekja punkt hennar nákvæmlega og mistúlka eitthvað í óvarlegri endursögn, legg ég til að lesendur lesi grein hans, enda er hún stutt og skorinort. Í greininni eru gerð tvenn mistök sem er vert að vekja athygli á. Penninn og sverðið Í fyrsta lagi er enginn greinarmunur gerður á því að sameina Evrópu með sverðinu og að sameina Evrópu með pennanum, heldur er áhersla lögð á að markmið Evrópusambandsins og nefndra einræðisfanta sé hið sama. En hvort að markmiðum sé náð með ofbeldi eða samningum er ekki aukaatriði heldur aðalatriði. Að kaupa vöru úti í búð er ekki það sama og að ræna búðina. Að ráða mann í vinnu er ekki það sama og að hýða þræl með svipu. Að fara í heimsókn til manns er ekki það sama og að brjótast inn til hans. Þótt markmið einhvers sem kaupir hlut sé hið sama og þess sem rænir honum með vopnavaldi, þá eru kaup og vopnað rán gjörsamlega eðlisólík fyrirbæri. Sömuleiðis er sameining Evrópu með pennanum, þ.e.a.s. frjálsir samningar á milli fullvalda ríkja um náið samstarf í sameiginlegri hagsmunavernd, eðlisólíkt nokkru því sem einræðisherrar fortíðarinnar reyndu til að sameina Evrópu, eða því sem Donald Trump hótar nú Grænlandi og Danmörku. Þessi munur er ekki smávægilegt tækniatriði, heldur gerir þetta greinarmuninn á villimennsku og siðmenningu. Enginn ágreiningur virðist þó vera um að Evrópusambandið beitir pennanum. Aðgangur og yfirráð Seinni mistökin eru sama eðlis, að enginn greinarmunur er gerður á hlutum sem eru í grundvallaratriðum ólík fyrirbæri; aðgangi og yfirráðum. Í greininni kemur fram að Evrópusambandið vilji „ná yfirráðum“ yfir Grænlandi, Íslandi, Noregi og sérstaklega auðlindum þeirra, en vísar í þeim efnum til nýlega samþykktrar skýrslu Evrópuþingsins.[2] Hið rétta er að skýrslan bendir á augljósa hagsmuni Evrópusambandsins af því að fá „aðgang“ að mörkuðum fleiri ríkja og auðlinda þeirra. Ástæðan er einnig rakin, sú afleita staða að vera háð árásargjörnu einræðisríki í landvinningastríði, um nauðsynjar eins og orku. Eðlilega vill Evrópusambandið frekar versla nauðsynjar frá frjálslyndum lýðræðisríkjum. Þó það nú væri. Sá göfugi metnaður er málaður upp sem á einhvern hátt gruggugur og jafnvel ógnvænlegur, en það tekst einungis með því að misskilja orðið „aðgangur“ sem „yfirráð“. En skýrslan kallar einfaldlega ekki eftir yfirráðum; sú túlkun er efnislega röng eins og sést best með lestri skýrslunnar sjálfrar. Mátum sama rugling við sömu hversdagslegu dæmi og voru rakin áðan; ef maður vill aðgang að matvöruverslun, þýðir það að maður hyggist ná yfirráðum yfir henni? Ef maður vill aðgang að vinnumarkaði, þýðir það að maður hyggist ná yfirráðum yfir honum? Ef maður vill aðgang að lánsfé hjá banka, þýðir það að maður hyggist taka yfir bankann? Nei, auðvitað ekki. Þessi hugtök þýða gjörólíka hluti. En hvers vegna? Það er ekki undirritaðs að geta til um hvers vegna þessum hugtökum er slegið svona saman. Hins vegar má benda á, að ruglingurinn er nauðsynlegur til þess að komast að þeirri niðurstöðu að Evrópusambandið ætli sér að taka yfir heilu þjóðríkin og auðlindir þeirra, vegna þess að þeirri hugmynd finnst hvergi staður í skýrslunni sjálfri. Þvert á móti margítrekar skýrslan mikilvægi sjálfsákvörðunarréttar þjóðríkja almennt og sérstaklega Grænlands, enda er hann óumdeildur innan Evrópu. Skýrslan leggur ríka áherslu á mikilvægi þess að styðja við réttindi og sjálfstæði ríkjanna við Norðurheimskautsbauginn. Reyndar er heili drifkraftur skýrslunnar einmitt sú viðleitni að verja sjálfsákvörðunarrétt lýðræðisríkjanna, bæði í Evrópusambandinu og við Norðurheimskautið, gegn ágangi gerræðisríkja eins og Rússlands. Þessu þarna með sverðið. Skýrslan kallar vissulega eftir því að vel verði tekið í aðild ríkjanna við Norðurheimskautsbauginn ef þau vilja gerast aðildarríki, en það þýðir ekki að Evrópusambandið hyggist ná yfirráðum yfir þeim. Því að eins og hitt, er þetta tvennt heldur ekki hið sama. Höfundur er í stjórn Evrópuhreyfingarinnar. [1] Fleiri ásælast Grænland en Trump [2] EU's diplomatic strategy and geopolitical cooperation in the Arctic Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Hrafn Gunnarsson Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar