Melanie Watson er látin Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. desember 2025 11:25 Hundurinn Roamer dregur Melanie Watson áfram eftir Western Avenue í Atlanta í Georgíu í tengslum við opnunarathöfn Ólympíuleikanna. Getty Barnastjarnan Melanie Watson, sem lék í gamanþáttunum Diff'rent Strokes, er látin, 57 ára að aldri.
Robert Watson, bróðir Melanie, greindi TMZ frá því að systir hans hefði dáið á annan í jólum, föstudaginn 26. desember, í borginni Colorado Springs. Nýleg mynd af Melanie. Melanie fæddist með arfgenga sjúkdóminn osteogenesis imperfecta, sem hefur ýmist verið þýddur sem beinstökkvi eða beinbrotasýki og felst í því að bein fólks brotna mun auðveldar. Hún hafði fengið innvortis blæðingar fyrir skömmu og var lögð í kjölfarið inn á spítala þar sem líðan hennar hrakaði hratt. Bróðir Melanie segir læknana hafa gert sitt besta til að bjarga henni en það hafi ekki dugað. Hún hafi verið heppin að lifa eins lengi og hún gerði með sjúkdóm sinn. Lék bara eitt hlutverk á ferlinum Melanie átti stuttan leiklistarferil en aðdáendur gamanþáttanna Diff'rent Strokes, sem voru sýndir frá 1978 til 1986 með Gary Coleman í aðalhlutverki, muna kannski eftir henni. Watson lék þar persónuna Kathy Gordon sem kom fyrir í fjórum þáttum yfir fjórar seríur. Þar á meðal voru þátturinn „Kathy“ í fjórðu seríu, þar sem persóna Gary Coleman reynir að sannfæra hana um að ganga með hækjur, og „Kathy's Olympics“ í þeirri sjöttu þar sem persónurnar keppa í hjólastólaólympíuleikum. Hún hafði sjálf ekki viljað ganga um á hækjum eftir að hafa dottið og slasast alvarlega nokkrum árum fyrr en móðir hennar Kathy hætti að leika eftir að Diff'rent Strokes lauk. Hún stofnaði þá góðgerðarsamtökin Train Rite sem gengu út á að þjálfa aðstoðarhunda og var gift manninum Roger Bernhardt frá 1994 til 1996. Watson viðurkenndi þó síðar að hún hefði ekki gert sér grein fyrir því „hve mikil gjöf það var“ fyrir hana að vera á skjánum og sagðist sjá eftir því að hafa hætt að leika. Þá sagðist hún hafa verið stolt af framleiðandanum Norman Lear fyrir að fara gegn norminu og ráða leikara með fötlun. „Ég ólst upp í Hartford í Connecticut. Hinum megin við götuna var manneskja með fötlun, í næstu götu var einhver annar með aðra fötlun. Ég var ekki ómeðvituð um það,“ sagði hún um birtingarmyndir fólks með fötlun í sjónvarpi. Melanie við opnunarathöfn Ólympíuleikanna árið 1996.Getty
Andlát Bíó og sjónvarp Bandaríkin Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sahara Ray látin Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Costanza á klakanum Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira