Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 30. desember 2025 13:36 Markaðurinn helgarefni Seðlabanki Íslands óvænt stýrivaxtahækkun Davíð Oddsson Eiríkur Guðnason Ingimundur Friðrikss Arnór Hrunið siðvæðing stjórnmálanna Það líður varla mánuður án þess að fólk nálgist Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi leiðtoga Jafnaðarmanna, og rifji upp með honum bráðfyndið augnablik í Kryddsíldinni árið 2002 þegar þeim Össuri og Davíð Oddssyni, fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, lenti saman og ásakanir um að vera dóni gengu á víxl við mikla kátínu hinna við háborðið.
Í tilefni þess að fréttastofan fagnar í ár 35 ára sjónvarpsafmæli þá var brugðið á það ráð að leita til nokkurra vel valinna gesta Kryddsíldar í gegnum árin til að rifja upp bestu og eftirminnilegustu atriði þáttanna í áranna rás. Þess skal getið að Kryddsíld er eldri en 35 ára því hún hóf göngu sína í útvarpinu á Bylgjunni árið 1986. Össur Skarphéðinsson var einn þeirra sem þáði boð um að deila með áhorfendum Íslands í dag sínu eftirminnilegasta augnabliki frá því hann var fastagestur í Kryddsíld og það stóð ekki á svörum. „Það var líkast til Kryddsíldin þar sem við Davíð næstum því slógumst, allavega okkur lenti saman í orðaglammi út af köpuryrðum sem hann hafði látið falla um fjarstadda konu sem var reyndar upp úr standandi í mínum flokki og svilkona mín, og ég svaraði í sömu mynt og lét hann ekkert eiga inni hjá mér og það endaði með því að hann sat á móti mér, nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti þú ert dóni Össur! Og ég auðvitað svaraði beint á móti, þú ert sjálfur dóni Davíð. Þetta var eftirminnilegasta augnablikið, ekki bara á mínum ferli heldur í sögu Kryddsíldarinnar. Enn í dag líður ekki sá mánuður að það komi ekki eitthvað fólk og rifji þetta upp, einkum í kringum áramótin.“ Vígamaðurinn að vestan þolir engann moðreyk Össur rifjar upp að enginn hafi komist upp með neinn moðreyk í settinu hjá Heimi Má þegar hann var þáttastjórnandi Kryddsíldar og kallar hann „vígamanninn að vestan.“Vísir/Vilhelm Össuri fannst mikilvægt að ákveðið samhengi kæmi fram á meðan við rifjum upp gamla tíma í Kryddsíld en hann segir að þáttastjórnendur á hverjum tíma hafi haft mikið um það að segja hvers konar andrúmsloft ríkti við borðið. Þannig hafi Kryddsíld farið í gegnum nokkra fasa, allt eftir því hver stjórnaði á hverjum tíma. „Þetta byrjaði með Heimi Má, sem var auðvitað vígamaður að vestan og vildi brauð og leika og spurði mjög hvassra spurninga og menn komust ekkert upp með neinn moðreyk. Þá voru þetta svona alvöru umræður.“ Honum fannst þá Kryddsíldin breytast í hálfgert jólaboð þegar Elín Hirst var við stjórnvölinn í þættinum. „Menn voru mikið spurðir út í það hvernig þeir væru á jólunum, hvað þeir gerðu, hvort þeir bökuðu og hvað þeir borðuðu og allir voru frekar huggulegir hver við annan.“ Bjórinn flæddi og hákarlinn kynntur til leiks Loks var það Sigmundur Ernir. „Sá góði drengur, og undir hans stjórn þá breyttist þetta eiginlega í áramótapartí. Bjórinn, sem hafði sést örlítið, flæddi stríðum straumum og svo var kominn hákarl og menn borða náttúrulega ekki hákarl án þess að hafa brennivin með þannig að það var staup fyrir þá sem vildu. Góðir starfsmenn stöðvarinnar gengu um beina þegar myndavélin var ekki á þeim og fylltu í staup hjá þeim sem vildu fá sér svolítið af brennivíni.“ Hann segir að þátturinn þar sem þeir Davíð lentu saman hafi verið mjög í anda Kryddsíldar Sigmundar Ernis. „Við vorum báðir kannski búnir að fá okkur svolítið af hákarli og með því, og rétt að segja það, eins og ég hef aldrei vikist undan að segja, auðvitað vorum við dálítið öls við pel þegar þetta gerðist og það markaði þessi samskipti okkar. Yfirleitt í þessum áramótapartíum Sigmundar Ernis þá kvöddust allir miklir vinir og föðmuðust en mig minnir að við Davíð höfum nú ekki faðmast mikið eftir þessa kryddsíld en þetta voru líka dálítið sérstakar aðstæður.“ Segir Davíð hafa verið úfinn í skapinu þennan dag Gengi flokkanna í skoðanakönnunum á þessum tíma hafi mjög litað andrúmsloftið í þættinum. „Ég var formaður Samfylkingarinnar og hún fór með himinskautum og var að rísa mjög hratt og Sjálfstæðisflokknum líkaði það auðvitað ekki og hann var hræddur við okkur og sjálfur vorum við í stöðugum útistöðum við Sjálfstæðisflokkinn því á þeim tíma hafði hann dálítið skýra stefnu, þeir voru nýfrjálshyggjumenn og miklir einkavæðingarsinnar þannig að við urðum að svara þeim mjög fast. Þetta leiddi til þess að Davíð þegar hann kom þarna inn í þennan þátt þá var hann úfinn í skapi, það hafði – held ég – nýlega komið skoðanakönnun sem sýndi að við vorum enn á uppleið, og sannarlega, eins og hans var háttur, hann ætlaði að reyna að setja þennan mann sem var foringi jafnaðarmanna „på plads“ með því að sýna að hann kæmist ekki upp með neinn moðreyk við hann en ég var náttúrulega ekki byrjandi á þeim vígvelli þannig að þannig fór þetta.“ Kryddsíld ársins 2025 verður í beinni útsendingu á Sýn á morgun á slaginu 14.00, ekki missa af henni.
Kryddsíld Sýn Ísland í dag Áramót Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Tengdar fréttir Kryddsíld fagnar afmæli og öllum er boðið Það styttist óðum í hina árlegu Kryddsíld á gamlársdag þangað sem formenn flokkanna á Alþingi mæta til að gera upp árið. Þátturinn er í beinni útsendingu á Sýn klukkan 14 og aðgengilegur öllum landsmönnum. Um er að ræða 35 ára afmæli þáttarins í sjónvarpi. Stiklan fyrir þáttinn í ár er komin í birtingu og má sjá neðst í fréttinni. 29. desember 2025 13:01 Mest lesið Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Innlent Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Innlent Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Innlent Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Innlent Allt að sautján stiga hiti Veður Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Innlent Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Quang Le fer ekki langt Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Íslendingar berjast um eitt af efstu átta sætunum á EM Bandero segist elta hvalbátana og Pollamótið hafið fyrir norðan Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Engum verkefnum útvistað og ekki greitt fyrir ráðgjöf Maður sem passaði við lýsinguna var handtekinn Alexandra ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar Sjá meira
Kryddsíld fagnar afmæli og öllum er boðið Það styttist óðum í hina árlegu Kryddsíld á gamlársdag þangað sem formenn flokkanna á Alþingi mæta til að gera upp árið. Þátturinn er í beinni útsendingu á Sýn klukkan 14 og aðgengilegur öllum landsmönnum. Um er að ræða 35 ára afmæli þáttarins í sjónvarpi. Stiklan fyrir þáttinn í ár er komin í birtingu og má sjá neðst í fréttinni. 29. desember 2025 13:01
Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innlent
Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innlent