Icelandair setur nokkur met Samúel Karl Ólason skrifar 6. janúar 2026 09:05 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Vísir/Anton Icelandair hefur aldrei flutt fleiri farþega en á síðasta ári en í heildina var fjöldinn um 5,1 milljónu og er það átta prósentum meira en árið 2024. Þá var desember stærsti desembermánuðurinn í sögu Icelandair en þá flutti flugfélagið 344 þúsund farþega.
Í tilkynningu frá félaginu segir að aukningin í desember hafi verið tíu prósent, samanborið við desember í fyrra. Þá hafi 27 prósent farþeganna verið á leið til Íslands, tuttugu prósent á leið frá Íslandi. Þar segir einnig að stundvísi hafi verið 80,1 prósent í desember og það sé framúrskarandi niðurstaða. Í desember í fyrra hafi stundvísin verið 59,7 prósent. Stundvísi jókst einnig fyrir árið í heild en hún var 83,9% samanborið við 82,7% árið 2024. Icelandair setti einnig met þegar kemur að sætanýtingu í desember en hún var 84,1 prósent. Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 6%, vegna hærra hlutfalls eyðslugrennri flugvéla í flotanum og góðrar sætanýtingar. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir þessa niðurstöðu vera árangur sameiginlegs átaks starfsfólks. „Desember var sá stærsti í sögu okkar og einnig árið í heild en farþegafjöldinn fór í fyrsta sinn yfir fimm milljónir. Við lögðum áherslu á að auka framboð utan háannatíma til að hámarka nýtingu innviða og draga úr árstíðarsveiflu. Framúrskarandi stundvísi á árinu, 83,9%, setur okkur í hóp fremstu flugfélaga Evrópu. Þessi niðurstaða er árangur sameiginlegs átaks alls starfsfólks Icelandair.“ Uppfært: Síðasti desember var ekki stærsti mánuðurinn í sögu Icelandair, heldur stærsti desembermánuður í sögu félagsins.
Icelandair Fréttir af flugi Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Húrra dregur saman seglin Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Innleiða gervigreindina í MS Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Fleiri fréttir Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Sjá meira