Segir Venesúela munu afhenda Bandaríkjunum milljónir tunna af olíu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 7. janúar 2026 06:39 Að sögn Trump verður olían flutt til hafnar í Bandaríkjunum án tafar. Getty/Tasos Katopodis Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á samfélagsmiðlinum Truth Social í gær að stjórnvöld í Venesúela myndu afhenda Bandaríkjunum hráolíu að andvirði tveggja milljarða dala. „
Þessi olía verður seld á markaðsvirði og fjármunirnir verða á mínu forræði sem forseta Bandaríkjanna til að tryggja að þeir verði nýttir í þágu íbúa Venesúela og Bandaríkjanna!“ sagði Trump. Stjórnvöld í Venesúela hafa ekki tjáð sig um yfirlýsinguna. Milljónir tunna af olíu sitja nú í tönkum og um borð í skipum í Venesúela, eftir að Bandaríkjamenn hófu aðgerðir sínar undan ströndum landsins. Þeir hafa meðal annars lagt hald á olíuflutningaskip og þá náðu aðgerðirnar hámarki þegar ráðist var á höfuðborgina Caracas og forsetinn Nicolás Maduro handsamaður og fluttur til Bandaríkjanna. Maduro var leiddur fyrir dómara í fyrradag, þar sem hann sagði að honum hefði verið rænt og að hann væri nú stríðsfangi. Aðrir ráðamenn í Venesúela hafa einnig talað um mannrán en hins vegar virðast stjórnvöld þar í landi ætla að koma til móts við kröfur Bandaríkjamanna að einhverju leyti, ef það er rétt sem Trump heldur fram um olíuna. Trump hefur krafist þess að starfandi forseti Venesúela, Delcy Rodríguez, veiti bandarískum olíufyrirtækjum óhindraðan aðgang að olíuauðlindum landsins. Það á hins vegar enn eftir að koma í ljós hversu áfjáð fyrirtækin eru að fara inn í Venesúela, þar sem fullkomin óvissa ríkir um framhaldið.
Venesúela Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira