Bærinn í Sviss þar sem barinn brann hýsir Ólympíuleikana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2026 11:32 Hér má sjá mynd frá minningarathöfn í Crans-Montana þar sem barinn brann með miklu mannfalli. Getty/Harold Cunningham Svissneski skíðabærinn Crans-Montana, þar sem mannskæður bruni varð á bar á fyrsta degi ársins, mun halda alpagreinakeppni Ólympíuleikanna árið 2038.
Innan við tveimur vikum eftir brunann á Le Constellation, þar sem fjörutíu létust og 116 aðrir slösuðust, hafa forsvarsmenn umsóknarinnar sagt að sveitarfélagið sé lykilstaður í tillögum þeirra fyrir Vetrarólympíuleikana eftir tólf ár. Vetrarólympíuleikarnir 2026 fara fram í Mílanó og Cortina í næsta mánuði, eftir fjögur ár verða þeir í frönsku Ölpunum og árið 2034 verða þeir haldnir í Salt Lake City í Bandaríkjunum. Ekkert annað land fær að bjóða í leikana Alþjóðaólympíunefndin hefur veitt Sviss forgangsstöðu, sem þýðir að ekkert annað land fær að bjóða í leikana á meðan Sviss lýkur við tillögu sína. Nema eitthvað óvænt komi upp á mun landið því halda leikana árið 2038. Guardian segir frá. Á mánudag staðfestu skipuleggjendur að Crans-Montana myndi halda keppnisgreinar sem hluta af áætlun þeirra um að halda keppnir víðs vegar um landið eftir tólf ár til að forðast að nota skattfé í byggingarframkvæmdir. Ákvörðunin kemur ekki á óvart Ákvörðunin kemur ekki að öllu leyti á óvart í ljósi þess að Crans-Montana mun halda heimsmeistaramótið í alpagreinum á næsta ári, auk heimsbikarmóta eftir þrjár vikur, fyrir Ólympíuleikana í Mílanó-Cortina. Crans-Montana the star in 2038 Switzerland Winter Olympics bid https://t.co/DS3RMh0vYd— City A.M. (@CityAM) January 12, 2026 Eigandi barsins og eiginkona hans eiga yfir höfði sér ýmsar hugsanlegar ákærur, þar á meðal fyrir „manndráp af gáleysi“, vegna brunans sem er talinn hafa kviknað í kjallaranum þegar stjörnuljós komust í snertingu við hljóðeinangrunarfroðu í loftinu. „Við keppum fyrir þær“ Í síðustu viku tileinkaði svissneska skíðakonan Camille Rast sigur sinn í stórsvigi á heimsbikarmóti fórnarlömbum brunans. Rast sló tvisvar á svarta sorgarbandið á vinstri upphandlegg sínum eftir sigurinn og sagði: „Í vikunni varð hörmulegt slys í heimabæ mínum og ég hugsa til þessara fjölskyldna. Við keppum fyrir þær,“ sagði Camille Rast. Gert er ráð fyrir að bobbsleðakeppnin árið 2038 fari fram í St. Moritz, skíðastökk í Engelberg og skíðaskotfimi í Lenzerheide. Íshokkí yrði spilað á leikvöngum í Zürich og Zug, en sumir leikir færu til Lugano þar sem ítölskumælandi svæði landsins yrði með. Á meðan mun Lausanne, heimaborg Alþjóðaólympíunefndarinnar, halda opnunarathöfnina, listskauta og skautahlaup á stuttum brautum fyrir það sem verða fyrstu Vetrarólympíuleikarnir í Sviss síðan Ólympíuleikarnir í St. Moritz voru haldnir árið 1948. Höfuðborgin, Bern, er áætluð fyrir lokahátíðina. Annars staðar mun Genf halda skautahlaup og krullu – í Palexpo-sýningarhöllinni þar sem Davis-bikarinn í tennis og árlegt hestamót í stökki hafa farið fram – og verður miðstöð fyrir alþjóðlegar útsendingar. #DeportesCrans Montana, entre las sedes presentadas por Suiza en su plan para los JJOO de 2038https://t.co/x7XUGj6QfE#ElComentario #CransMontana #Suiza #JuegosOlímpicosdeInvierno #SedesDeportivas pic.twitter.com/jK1NKPDS9h— El Comentario (@ComentarioUdeC) January 12, 2026
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Eldsvoði á skemmtistað í Sviss á nýársnótt Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina Sjá meira