Sex gull af sex mögulegum: Sögulegur sigur Klæbo á Vetrarólympíuleikunum Norðmaðurinn Johannes Høsflot Klæbo vann sögulegan sigur í fimmtíu kílómetra skíðagöngu karla á Vetrarólympíuleikunum í dag. Þetta voru sjöttu gullverðlaun Klæbo í jafnmörgum greinum á leikunum og slær hann þar með met yfir flest gullverðlaun á einum og sömu Vetrarólympíuleikunum. Sport 21.2.2026 12:07
„Hægt að ná langt með því að vera hress og skemmtilegur“ Skíðakappinn Jón Erik Sigurðsson er nú kominn heim eftir frábært gengi á Vetrarólympíuleikunum. Þar vakti hann athygli fyrir jákvætt og hressandi viðhorf en þurfti einnig að leiðrétta misskilning sem fór á kreik þegar sumir töldu hann hreinlega vera að skemmta sér of mikið. Sport 21.2.2026 09:31
Vinna að nýrri mæliaðferð eftir „typpahneykslið“ Orðrómur um typpastækkanir hefur valdið fjaðrafoki í skíðastökksheiminum á Vetrarólympíuleikunum í ár. Nú vinnur Alþjóðaskíðasambandið að því að koma í veg fyrir slíka möguleika á svindli í framtíðinni. Sport 20.2.2026 23:16
Noregur jafnaði gullverðlaunametið sitt á Ólympíuleikum Gullverðlaun í norrænni tvíkeppni sem Andreas Skoglund og Jens Lurås Oftebro unnu sá til þess að Noregur jafnaði eigið gullverðlaunamet á Ólympíuleikunum í dag. Sport 19. febrúar 2026 17:30
Rann á blásara utangátta starfsmanns Mildi þótti að ekki færi verr þegar hinn bandaríski Ben Loomis renndi sér af stað í skíðastökki, á Vetrarólympíuleikunum, og á snjóblásara starfsmanns sem ekki fylgdist nægilega vel með. Sport 19. febrúar 2026 14:17
„Day of fun“ fól ekki í sér áfengi hjá Jóni Erik Skíðakappinn Jón Erik Sigurðsson vakti mikla athygli þegar hann birti „Day of fun“ myndband með vinum sínum degi áður en hann keppti á Vetrarólympíuleikunum. Jón Erik áréttar að hann drekkur ekki áfengi. Sport 19. febrúar 2026 13:45
Drukkin í útsendingu og baðst afsökunar Ein þekktasta íþróttafréttakona Ástralíu hefur beðist afsökunar á því að hafa verið drukkin í beinni útsendingu frá Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu. Forsætisráðherra Ástralíu sýndi henni fullan skilning. Sport 19. febrúar 2026 11:31
Sagðar hafa hætt saman en mætast í úrslitaleik í kvöld Eins og íshokkí rígurinn milli Bandaríkjanna og Kanada hafi ekki verið nógu mikill fyrir, þá virðast leikmenn sitt hvors liðsins vera að ganga í gegnum sambandsslit. Þær munu mætast á svellinu í kvöld, í úrslitaleik Vetrarólympíuleikanna. Sport 19. febrúar 2026 07:57
„Leyfa morðingjum og vitorðsmönnum þeirra að keppa á Ólympíumótinu“ Úkraínsk yfirvöld eru vægast sagt ævareið yfir þátttöku Rússa á Ólympíumóti fatlaðra. Sport 19. febrúar 2026 07:00
Hundur Lindsey Vonn dó daginn eftir að hún fótbrotnaði á ÓL Bandaríska skíðakonan Lindsey Vonn lenti í árekstri í brunkeppninni í byrjun Ólympíuleikanna. Hún fótbrotnaði og hefur farið í fjórar aðgerðir síðan þá. Sport 18. febrúar 2026 23:30
Vann Ólympíugull á afmælisdaginn sinn: „Ég gat ekki hætt að gráta“ Snjóbrettakappinn Su Yiming tryggði Kínverjum fyrstu gullverðlaunin á Ólympíuleikunum í Mílanó og Cortina þegar hann sigraði í úrslitum í brekkukeppninni í skíðafimi karla. Sport 18. febrúar 2026 22:51
„Ég efaðist um hversu mikinn kjark ég hefði í hjartanu“ Stormasömum tólf ára Ólympíuferli Mikaelu Shiffrin lauk í dag þegar hún sigraði í svigi með yfirburðum og batt þar með enda á langa verðlaunaþurrð sína á Vetrarólympíuleikunum. Sport 18. febrúar 2026 22:31
Norðmaðurinn kominn í mjög fámennan hóp með Michael Phelps Norðmaðurinn Johannes Hösflot Klæbo vann tíundu gullverðlaun sín í skíðagöngu á Ólympíuleikunum í Mílanó Cortina í dag og setti þar með annað met á Vetrarólympíuleikum. Sport 18. febrúar 2026 18:00
Löng bið Shiffrin á enda Hin bandaríska Mikaela Shiffrin hlaut Ólympíugull í svigi eftir öruggan sigur í greininni. Um er að ræða hennar fyrsta gull í átta ár. Sport 18. febrúar 2026 15:03
Hélt að hundurinn sem hljóp inn á brautina væri úlfur Hundur hljóp inn á brautina og stal sviðsljósinu í liðasprettkeppni í skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum. Einn keppandinn hélt að þetta væri úlfur. Sport 18. febrúar 2026 12:30
Stækkaði typpi skíðastökkvara Sterkur orðrómur hefur verið uppi um að keppendur í skíðastökki karla á Vetrarólympíuleikunum hafi látið stækka getnaðarlim sinn, í von um meiri árangur á leikunum. Nú hefur lýtalæknir svo gott sem staðfest orðróminn. Sport 18. febrúar 2026 11:32
Stutt gaman hjá stelpunum okkar í brekkunni Skíðakonurnar Elín Elmarsdóttir van Pelt og Sonja Lí Kristinsdóttir hafa lokið keppni á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu. Báðar féllu úr keppni í fyrri ferð dagsins í svigi. Sport 18. febrúar 2026 10:35
Fær um þrjátíu milljónir í sárabætur frá ríkasta manni Úkraínu Úkraínski sleðakappinn með heimsfræga hjálminn, Vladyslav Heraskevych, fékk ekkert fyrir sinn snúð frá alþjóða Ólympíunefndinni en ríkasti maður Úkraínu ætlar að leggja inn á hann um þrjátíu milljónir króna í sárabætur. Sport 18. febrúar 2026 09:01
„Þessi medalía er fyrir allar mömmurnar“ Elana Meyers Taylor hafði unnið allt sem hægt er að vinna á sínum ferli í bobbsleðanum, nema gullverðlaun á Ólympíuleikunum. Gullverðlaunin skiluðu sér svo loksins í ár, þegar Elana er orðin rúmlega fertug og tveggja barna móðir. Sport 18. febrúar 2026 07:00
Fatlaðir fá að keppa fyrir hönd Rússlands Á yfirstandandi Vetrarólympíuleikum þarf rússneskt íþróttafólk að keppa undir hlutlausum merkjum en aðrar reglur verða í gildi á Vetrarólympíumóti fatlaðra. Sport 17. febrúar 2026 20:00
Klopp hringdi bjöllu og hitti hetjuna sína á ÓL Jurgen Klopp, fyrrum þjálfari Liverpool og núverandi ráðgjafi hjá íþróttasamsteypu Red Bull, fékk ábyrgðarmikið hlutverk og hitti eina af sínum hetjum í skíðaskotfimikeppni á Vetrarólympíuleikunum í dag. Fótbolti 17. febrúar 2026 19:00
Fær meira en milljarð frá kínverska ríkinu Eileen Gu er launahæsta íþróttakona Vetrarólympíuleikanna. Fyrir mistök kom í ljós að stór hluti peninganna kemur frá kínverska ríkinu. Sport 17. febrúar 2026 15:45
Geta komið í veg fyrir að Donald Trump mæti á Ólympíuleikana Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að fljúga til Ítalíu til að horfa á Ólympíuleikana samkvæmt ítölskum fjölmiðlum. Sport 17. febrúar 2026 13:02
„Þeir sem virðast sterkastir geta samt verið að heyja ósýnilegar innri baráttur“ Bandaríski skautdansarinn Ilia Malinin þótti líklegur til afreka á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina en endaði langt frá verðlaunapallinum. Slök frammistaða hans var mörgum mikið áfall en Malinin gaf í skyn „óumflýjanlegt hrun“ vegna álagsins á Ólympíuleikunum. Sport 17. febrúar 2026 11:00