Machado heimsækir Hvíta húsið á fimmtudag Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. janúar 2026 07:19 Trump mun taka á móti Machado í Hvíta húsinu á fimmtudag og virðist, ef marka má erlenda miðla, vonast til þess að hún gefi honum friðarverðlaunin sem hún hlaut í fyrra. Getty/Rune Hellestad Donald Trump Bandaríkjaforseti mun taka á móti venesúelska stjórnarandstöðuleiðtoganum Maríu Corinu Machado í Hvíta húsinu á fimmtudaginn.
Machado sagðist í síðustu viku vilja hitta Trump til að þakka honum persónulega fyrir að hafa gripið til aðgerða gegn Nicolás Maduro, forseta Venesúela. Þá sagðist hún vilja gefa honum friðarverðlaun Nóbels, sem hún hlaut í fyrra. Þess ber að geta að Machado getur gefið Trump verðlaunamedalíuna en Nóbelsnefndin segir verðlaunahafa ekki getað „framselt“ titilinn sem slíkan. Margt bendir til þess að Maduro, sem var handsamaður af Bandaríkjamönnum í aðgerðum í Caracas þann 3. janúar síðastliðinn, hafi stolið forsetakosningunum árið 2024. Hann hafi í raun lotið í lægra haldi fyrir Edmundo González, frambjóðanda hreyfingar Machado, sem hafði verið bannað að taka þátt. Bandaríkjamenn tóku hins vegar þá ákvörðun í kjölfar aðgerðanna fyrir tíu dögum að styðja varaforseta Maduro til að taka við, í stað þess að koma valdinu í hendur stjórnarandstöðunnar. Trump, sem er afar súr yfir því að hafa ekki fengið friðarverðlaunin, sagði í kjölfar aðgerðanna að Machado hefði ekki þann stuðning né þá virðingu sem þyrfti til að taka við völdum. Þá hefur hann lýst Delcy Rodríguez, starfandi forseta, sem bandamanni, þrátt fyrir að hún hafi verið náin samverkamaður Maduro.
Bandaríkin Venesúela Nóbelsverðlaun Donald Trump Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira