Mönnun íslensks heilbrigðiskerfis til framtíðar í uppnámi Unnur Anna Valdimarsdóttir, Arna Hauksdóttir, Berglind Eva Benediktsdóttir, Bjarni Elvar Pétursson, Heiða María Sigurðardóttir, Helga Bragadóttir, Ólafur Ögmundarson, Sólveg Ása Árnadóttir og Sædís Sævarsdóttir skrifa 13. janúar 2026 11:02 Ísland telst til norrænna velferðarsamfélaga sem hafa sérstöðu á heimsvísu hvað varðar jafnt aðgengi þjóðar að menntun, félags- og heilbrigðisþjónustu. Flest erum við meðvituð um mikilvægi þessara samfélagslegu innviða enda sýna skoðanakannanir í aðdraganda Alþingiskosninga að heilbrigðismál eru iðulega meðal mikilvægustu málefna í huga almennings. Undirstaða slíks velferðarkerfis er vel menntað heilbrigðisstarfsfólk en undanfarin ár hefur skortur á heilbrigðisstarfsfólki í landinu aukist meðal annars vegna örrar fólksfjölgunar og öldrunar þjóðarinnar. Stjórnvöld hafa bent á að mannekla í heilbrigðiskerfinu muni aukast verulega á komandi árum og hafa því kallað eftir því að íslenskir háskólar fjölgi nemum í heilbrigðisgreinum. Háskóli Íslands gegnir afar mikilvægu hlutverki í menntun faglærðra heilbrigðisstétta á Íslandi. Sem dæmi má þar nefna menntun geislafræðinga, hjúkrunarfræðinga, ljósmæðra, lífeindafræðinga, lyfjafræðinga, lækna, matvæla- og næringarfræðinga, sálfræðinga, sjúkraþjálfara, talmeinafræðinga og tannlækna. Háskóli Íslands hefur undanfarin ár brugðist við ákalli stjórnvalda og fjölgað námsplássum um 14-38% í sjúkraþjálfun, hjúkrunarfræði og læknisfræði. Áform hafa verið um að fjölga enn frekar námsplássum í þessum greinum á næstu árum sem og í öðrum heilbrigðisgreinum þar sem fjöldatakmarkanir eru við lýði, til dæmis klínískri sálfræði, talmeinafræði og tannlæknisfræði. Forsenda slíkrar fjölgunar er markviss fjárfesting stjórnvalda í háskólamenntun. Nám í heilbrigðisgreinum er kostnaðarsamt vegna klínískrar þjálfunar, umfangsmikilla sérhæfðra innviða og fjölda sérfræðinga sem þarf til kennslu þessara þverfræðilegu greina. Fjölgun nema kallar óhjákvæmilega á fjölgun háskólakennara og frekari fjárfestinga í innviðum og húsnæði. Þrátt fyrir yfirlýsta stefnu stjórnvalda um fjölgun nema í heilbrigðisgreinum hafa framlög til háskólamála á Íslandi verið mun lægri en í nágrannalöndum okkar. Í fjárlögum 2026 bættist við 1% aðhaldskrafa á Háskóla Íslands sem, samhliða auknum útgjöldum vegna húsnæðis og launahækkana, setur fjárhag skólans og þar með starfsemi hans verulegar skorður. Þessi niðurskurður skaðar kjarnastarfsemi Háskóla Íslands og er grafalvarlegur fyrir Heilbrigðisvísindasvið sem þegar hefur verið vanfjármagnað svo árum skiptir og neyðist nú til að skera enn frekar niður, fresta nauðsynlegri nýliðun kennara og endurnýjun innviða. Afleiðingin er sú að áform Háskóla Íslands um fjölgun nema í heilbrigðisgreinum eru í uppnámi – og þar með sjálfbærni íslensks heilbrigðiskerfis til framtíðar. Ráðherrar heilbrigðis- og háskólamála voru nýlega upplýstir um þessa alvarlegu stöðu og þau úrræði sem brýnt er að ráðast í til að forðast frekari skerðingar á starfseminni og tryggja að hægt verði að halda áfram nauðsynlegri fjölgun nema í heilbrigðisgreinum. Það var ekki annað að heyra en að stjórnvöld taki þessum áskorunum af fullri alvöru. Það er því bjargföst trú okkar að stjórnvöld muni tafarlaust bregðast við þessum aðkallandi vanda Háskóla Íslands og Heilbrigðisvísindasviðs til að tryggja farsæla framtíð íslensks heilbrigðiskerfis. Unnur Anna Valdimarsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs Arna Hauksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum Berglind Eva Benediktsdóttir, forseti Lyfjafræðideildar Bjarni Elvar Pétursson, forseti Tannlæknadeildar Heiða María Sigurðardóttir, forseti Sálfræðideildar Helga Bragadóttir, forseti Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar Ólafur Ögmundarson, forseti Matvæla- og næringarfræðideildar Sólveg Ása Árnadóttir, formaður Námsbrautar í sjúkraþjálfun Sædís Sævarsdóttir, forseti Læknadeildar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar